Pawel skýtur föstum skotum á Frið­jón

Pawel Bar­toszek, borgar­full­trúi Við­reisnar og for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, skýtur föstum skotum á Frið­jón Frið­jóns­son, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins og frambjóðanda í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, á face­book síðu sinni í gær­kvöldi,

Frið­jón vakti at­hygli um daginn þegar hann tók sæti Hildar Sverris­dóttur á Al­þingi og kallaði Krist­rúnu Frosta­dóttur og Jóhann Pál Jóhanns­son “krón­prinsessu” og “joker” í “spila­stokki Sam­fylkingarinnar”.

Hann fór um víðan völl í ræðu sinni og rifjaði meðal annars upp um­ræðu sem var á Al­þingi fyrir nokkrum dögum um hús­næðis­mál.

Í þeirri um­ræðu var gengið hart að meiri­hlutanum í borginni fyrir að­gerða­leysi, en stjórnar­and­stöðu­flokkar nýttu tæki­færið og beindu spjótum sínum að Hafnar­firði og stöðunni þar. Frið­jón tók þátt í þessari um­ræðu og sagði að í­búum hefði fjölgað mikið í kringum höfuð­borgina miðað við lands­meðal­tal. Sagði hann meðal annars:
,,Alls staðar nýta sveitar­fé­lögin tæki­færi til að upp­fylla óskir um ó­dýrar í­búðir og sér­býli, um að eiga garð og yrkja hann, öfugt við það sem gerist í Reykja­vík þar sem í­búar Voga­byggðar voru skyldaðir til að rækta berja­runna þvert gegn vilja sínum.“

Þessu tók Pawel ekki vel og gagn­rýndi hann Frið­jón og telur að Sjálfstæðismenn séu ósáttir við að vera ekki í meirihluta:

,,Þegar sjálf­stæðis­menn minnast á Reykja­víkur­borg úr ræðu­stól þingsins væri það í þeim til­gangi að lýsa gremju sinni yfir því að flokkurinn sé ekki í meiri­hluta þar.”

Færsluna í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.