Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og fyrrverandi Alþingismaður, baunar á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í færslu á Facebook-síðu sinni fyrr í dag. Honum finnst orka tvímælis að sjálfstæðismenn í borginni hafi viljað skylda börn á leikskólaaldri í bólusetningu. Hann vill ekki þvinga fólk í bólusetningar.
Umræða um skyldubólusetningar eða höft á óbólusetta borgara hefur vaxið dag frá degi síðan síðustu samkomutakmarkanir innanlands litu dagsins ljós. Skiptar skoðanir eru meðal fólks á því, eins og gengur, en hins vegar er raunverulegur möguleiki á því, ef marka má orð Þórólfs Guðnasonar um mögulega skyldubólusetningu.
Einn af þeim sem ekki er hrifinn af slíkum kvöðum á almenna borgara er áðurnefndur Pawel. Gerir hann grein fyrir því nánar í færslu sinni:
„Þar sem ég les í gegn gamlar fundargerðir rifjast það upp að það var eitt fyrsta mál Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu að skylda leikskólabörn í bólusetningu. Ég var ekki hrifnn af því af tveimur ástæðum,“ segir Pawel og þylur því næst upp ástæðurnar.
„Í fyrsta lagi hlýtur það að vera með ítrustu aðgerðum réttarríkisins að þvinga fólk í læknisaðgerð gegn vilja sínum og gott að geta sleppt því ef maður mögulega getur,“ segir Pawel og heldur áfram.
Hann segir að almenningur þiggi ekki bólusetningu til þess að þóknast ríkinu, heldur upplifir það skyldu gagnvart samborgurum sínum: „Í öðru lagi, ef ég tala inn í pragmatíkina, eru félagslegir hvatar gjarnan sterkari en lagalegir hvatar. Við erum með eitt besta bólusetningarhlutfall í heimi, vegna þess að fólk upplifir það sem skyldu sína gagnvart sínum samborgurum að bólusetja sig. Ekki skyldu sína gagnvart ríkinu.“
Fornleifafræðingurinn Albína Hulda leggur orð í belg undir þræði Pawels: „Ég held það væri reyndar mjög sniðugt að nýta leikskólana til að minna reglubundnar skoðanir og bólusetningar barna. Það er t.d. mjög algengt að foreldrar og forráðafólk gleymi 4 ára skoðun þar sem er bólusett, skimað fyrir þroska og sjónpróf. Bólusetningarhlutfall 5 ára barna er mun lægra og þar væri tilvalið að minna foreldra á að bóka þessa skoðun fyrir börn sín í gegnum leikskólakerfið. En það á aldrei að skerða réttindi barna vegna skorts á bólusetningum, þau ráða þessu ekki sjálf,“ segir Albína.
Pawel svarar: „Fínt að minna á og auðvelda, skipuleggja og hvetja. Bara eins og við höfum verið að gera. Nota "nú er komið að bólusetningu" orðalagið og láta sem ekkert sé sjálfsagðara. En staldra við lagalega þvingun.“
Halldór Auðar Svansson, virkur Pírati og fyrrverandi borgarfulltrúi, svarar Pawel og tekur undir gagnrýni hans á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins: „Þetta var endurflutt efni frá síðasta kjörtímabili, furðuleg þráhyggja alveg þvert á mat sóttvarnayfirvalda á því hvað er líklegt til að virka og ekki virka til að auka bólusetningarhlutfall. Þegar svona tillaga var fyrst lögð fram í borgarstjórn ákvað ég hreinlega að falast eftir skoðunum embættis sóttvarnalæknis á þessari hugmynd, svarið var að ástandið kallaði ekki á svona aðgerðir og að þær gætu jafnvel gert illt verra,“ segir Halldór.
Hann kemur með hugmynd að annarri nálgun á hlutina: „Betra væri að vinna betur í að ná til fólks og styðja við það. Það þótti mér nægjanleg rök til að hafna þessu en hef hins vegar hvergi séð skýr rök fyrir því af hverju ætti eiginlega að gera þetta. Einhver tilfinning fólks fyrir því að eitthvað hljóti bara að virka eða sé einhvern veginn móralskt rétt að gera nægir mér ekki til að taka afstöðu með þvingunaraðgerðum. Sérstaklega þegar þeim er beint gegn börnum,“ segir Halldór.
Þá setur Berglind nokkur spurningarmerki við vilja Sjálfstæðisflokksins til þess að skylda einstaklinga til einhvers: „Er flokkur sem kennir sig við frelsi að mæla bólusetningum barna sem skyldu? Var líka að velta fyrir mér hve furðulegt það er að þingmenn Sjálfstæðisflokks virðist tala fyrir því að það komi til greina að skerða frelsi óbólusettra.“