Pawel fór í bílastæðaeftirlit í gærkvöldi og sá fullt af tómum stæðum – Sjáðu myndirnar

Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður skipulagsráðs, skellti sér í bílastæðaeftirlit við Bústaðaveg í gærkvöldi. Talsverð umræða hefur verið um fyrirhugaðar breytingar á svæðinu þar sem til stendur að reisa sautján tveggja hæða hús.

Einhverjir hafa viðrað þær áhyggjur að næsta vonlaust verði að fá bílastæði nái breytingarnar fram að ganga. En Pawel hefur ekki miklar áhyggjur af því ef marka má skrif hans á Facebook í gærkvöldi og myndir sem hann birti máli sínu til stuðnings.

„Ég var eindregið hvattur til að skoða bílastæðamál við Bústaðaveg að kvöldi þegar allir eru heima. Auðvitað verður formaður skipulagsráðs við því! Planið hjá Grímsbæ er með tómlegra móti nú um tíuleytið. Fyrir neðan það sem fólk býr... var nýtingin talsvert meiri. Ég taldi 70 bíla og 40 laus stæði sem er þá um 64% nýting,“ segir hann.

Í færslu sinni segir Pawel að það geti verið margvíslegar ástæður fyrir því að fólk sé á móti uppbyggingu í sínu nærumhverfi.

„Í þessu tilfelli sýnist mér allavega sem áhyggjur af bílastæðum eigi ekki að vega mjög þungt. Það eru til margir staðir í um alla borg þar sem talsvert minna er af stæðum. Til viðbótar má nefna að tillögurnar gera ráð fyrir fjölgun stæða, á svæðinu, ekki fækkun.“