Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og borgarfulltrúi Viðreisnar, hefur lítinn húmor fyrir mótmælum sem Samtök hernaðarandstæðinga stóðu fyrir í Hvalfirði í gær.
Eins og kunnugt er fór fram umfangsmikil varnaræfing á svæðinu þar sem bandarískar landgönguliðar æfðu meðal annars lendingar í firðinum. Æfingin var fjölmenn en hátt í þúsund manns komu að henni með einum eða öðrum hætti.
Samtök hernaðarandstæðinga blésu til kræklingatýnslu í Hvalfirði á sama tíma og æfingin fór fram. Guttormur Þorsteinsson, formaður Samtakanna, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að Bandaríkjaher hefði ýmislegt á samviskunni.
Pawel lýsti yfir óánægju sinni með uppátæki samtakanna á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
„Meðan ógeðfellt innrásarstríð geisar Úkraínu eru einhverjir í herlausu landi að mótmæla æfingum fólks sem vakir yfir okkur meðan við sofum. Og þessi kræklingatínsla... illa tímasettur aulahúmor.“