Pawel Bartoszek, borgarfulltrúa Viðreisnar, brá í brún þegar hann sá svarthvíta mynd af þríeykinu svokallaða: Víði Reynissyni, Þórólfi Guðnasyni og Ölmu Möller, á vef Vísis í dag.
Pawel birti athyglisverða færslu um þetta í Facebook-hópnum Fjölmiðlanördar í dag þar sem hann segir:
„Fun fact. Þegar fjölmiðlar birta myndir af fólki í svarthvítu þá halda allir Pólverjar í örskamma stunda að allt fólkið á myndinni sé fallið frá. Vá, þetta voru vondar millisekúndur,“ segir Pawel sem fæddist í Póllandi en fluttist til Íslands þegar hann var barn.
Í athugasemdum er Pawel spurður hvort um sé að ræða einhvers konar fjölmiðlahefð í Póllandi, að birta svarthvítar myndir þegar andlát eiga sér stað.
Sú virðist vera raunin ef marka má svar borgarfulltrúans og nefnir hann til dæmis sorglegt slys árið 2010 þegar forseti Póllands lést í flugslysi ásamt öðrum háttsettum embættismönnum.
Segir hann að myndbönd af fólki sem var í vélinni hafi verið sýnd í svarthvítu jafnvel þó þau hefðu verið tekin daginn fyrir slysið.