Ólíkir einstaklingar sjást í Kópavogi og syngjandi máfur var einn þeirra sem var í bænum í kvöld og lét til sín heyra umfram aðra.
Margir óskapast yfir grimmd og græðgi máfanna um þessar mundir og af ærnu tilefni. Viðkvæmur tími er genginn í garð og fallegu fuglarnir farnir að útbúa hreiðrin.
Máfar eru „fljúgandi rottur“ hefur oft verið sagt og ritað en hann verpir líka og er viðkvæmur á því sviði eins og aðrir fuglar.
Sérkenni Sílamáfsins
Sílamáfur er reyndar eini máfurinn sem er alger farfugl. Hann dvelur við strendur Pýreneaskaga og NV-Afríku á veturna. Heimkynni hans eru annars í V- og N-Evrópu, austur til Síberíu.
Hann hefur reyndar fjölbreyttan matseðil. Sandsíli og annar smáfiskur er ofarlega á seðlinum. Hann leitar meira ætis á landi en aðrir stórir máfar og tekur þá m.a. skordýr og orma og fer í berjamó á haustin.
Svo er ýmislegt óskemmtilegt við matseðilinn: Til dæmis hræ, úrgangur, egg og fuglsungar.
Viðar Sigurðsson áhugaljósmyndari tók þessa mynd af Sílamáfinum sem við nefnum Pavarotti.