Páskaegg Sigmundar Davíðs eyðilagðist – Sjáðu myndina

„Eftir skamma stund var eggið mitt orðið eins og uppfyllingarefnið úr Geldingadölum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra.

Segja má að illa hafi farið fyrir páskaegginu – eða því sem eftir var af því – í dag þegar það stóð innandyra á stað þar sem sólin skein á það. Sigmundur birti mynd af þessu á Facebook-síðu sinni og virðist hún hafa kætt nokkuð marga.

„Til minnis fyrir næstu páska: Þótt það sé gaman að sjá að sólin geti blómgað jurtir á bak við gler í 10 stiga frosti og roki má ekki líta af páskaegginu á meðan maður skoðar blómin. Eftir skamma stund var eggið mitt orðið eins og uppfyllingarefnið úr Geldingadölum. E.t.v. nýr málsháttur: „Það sem blómin græðir páskaeggin bræðir”.“

Sigmundur Davíð er ekki eini þingmaðurinn sem lenti í þessu um páskana. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, birti mynd af sínu páskaeggi í gær og átti málshátturinn í egginu vel við: „Betri er hálfur skaði en allur”.

Myndir af páskaeggjum þeirra Sigmundar og Njáls Trausta má sjá hér að neðan:

Til minnis fyrir næstu páska: Þótt það sé gaman að sjá að sólin geti blómgað jurtir á bak við gler í 10 stiga frosti og...

Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Mánudagur, 5. apríl 2021

,,Betri er hálfur skaði en allur”. Málshátturinn átti vel við þennan morguninn. Geislar sólar höfðu farið hörðum höndum um páskaeggið. Þekkt vandamál hérna fyrir norðan :) Gleðilega páska gott fólk.

Posted by Njáll Trausti Friðbertsson on Sunnudagur, 4. apríl 2021