„Við fengum 140 þúsund krónur frá Kópavogsbæ. Það nær ekki yfir helminginn af tjóninu,“ segir Lukasz Frydrychewicz í samtali við Fréttablaðið í dag.
Blaðið greinir frá vatnstjóni sem Lukasz og kærasta hans, Ewa Jaszczuk, urðu fyrir í desember þegar vatnslögn sprakk á Marbakkabraut í Kópavogi. Íbúðin sem Lukasz og Ewa leigðu fór á flot og eyðilagðist nánast allt innbú þeirra.
Lukasz og Ewu er farið að lengja eftir svörum frá tryggingafélaginu VÍS og Kópavogsbæ varðandi ábyrgðina á vatnslekanum sem kom þeim á götuna um tíma. Þau komust í nýja íbúð á stúdentagörðunum í Grafarvogi þann 22. desember síðastliðinn og eru alsæl með það en vilja svör varðandi tjónið.
Málið hefur haft sín áhrif á Lukasz og Ewu og hefur fyrrverandi leigusali þeirra til dæmis neitað að greiða þeim þriggja mánaða tryggingu til baka. Þá hafi Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, haft samband stuttu fyrir jól eftir að Lukasz bað um fund með henni.
„Hún sagðist vera allt of upptekin til þess að hittast en sagði að hún væri miður sín yfir lekanum,“ segir hann og bætir við í samtali við Fréttablaðið að Ásdís hafi boðið þeim 140 þúsund krónur í formi peninga. Kópavogsbær er eigandi vatnslagnarinnar sem sprakk og er VÍS tryggingafélag bæjarins. Lukasz segir að þessar 140 þúsund krónur dugi skammt enda nær upphæðin ekki einu sinni yfir helminginn af tjóninu.
„Það eru engin ný skilaboð, málið situr bara kyrrt. Við erum enn að bíða eftir skýrum svörum frá VÍS og Kópavogsbæ,“ segir Lukasz sem vonast til þess að eitthvað gerist á nýju ári.
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag og á vef Fréttablaðsins.