Pálmi Gunnars sár og svekktur: Aldrei þurft að játa sig sigraðan fyrr en nú

Tónlistarmaðurinn magnaði Pálmi Gunnarsson er sár og svekktur eftir að fresta þurfti tónleikum Mannakorns fram til haustsins. Tónleikarnir áttu að fara fram í kvöld en því miður lögðust bæði Pálmi og Magnús Eiríksson í flensu.

„Þegar ég keyrði suðurströndina heim eftir skemmtilega páskahelgi, var ég fullur tilhlökkunar að mæta í Háskólabíó til að spila með Mannakornum fyrir stappfullu húsi. Á fjandanum átti ég frekar von á en fúlli flensu sem lagði mig á mettíma og rændi mig alfarið röddinni og öllum krafti,“ segir Pálmi á Facebook-síðu sinni.

„Ekki bara það, hún heimsótti Magnús vin minn með viðlíka látum. Á þeim áratugum sem ég hef staðið á sviði hef ég aldrei þurft að játa mig sigraðan fyrir flensum eða kvefpestum, en svo bregðast krosstré.“

Pálmi segir verst að þurfa að tilkynna fólkinu sem búið var að kaupa miða fyrir tveimur árum og þreyja þorrann og góuna í gegnum aðra skítaveiru. Tónleikarnir fara þó fram í haust og kveðst Pálmi vita að áhangendur sveitarinnar sýni stöðunni skilning.

„Óska ykkur gleðilegs sumars og sé ykkur vonandi sem allra flest í haust. Starfsfólk tix.is verður í sambandi við miðaeigendur varðandi næstu skref.“

Á vef Tix kemur fram að tónleikarnir fari fram 21. október næstkomandi og hefur aukatónleikum verið bætt við þann 20. október. Hafa miðahafar fengið tilkynningu í tölvupósti.