Pálmi Gestsson leikari segir að það vanti tilfinnanlega þátt eins og Spaugstofuna á dagskrá. Spaugstofan var um árabil vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins en lauk göngu sinni fyrir nokkrum árum.
Pálmi er í viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem hann ræðir feril sinn og árin á Spaugstofunni meðal annars. Pálmi segir að um 550 þættir hafi verið gerðir í það heila og viðurkennir í viðtalinu að það hafi verið lýjandi. Þetta hafi þó verið gaman enda þeir Spaugstofubræður verið góðir vinir.
Eins og flestum er kunnugt einbeitti Spaugstofan sér að miklu leyti að stjórnmálamönnum landsins, þingmönnum og ráðherrum, sem stundum fengu að finna fyrir því. Pálmi segir að flestir hafi kunnað að meta húmorinn, fyrir utan einn sem vildi þáttinn af dagskrá.
„Þó var einn sem var mjög ósáttur við mig. Hann reyndi að fá útvarpsstjóra til að taka þáttinn af dagskrá. Við höfðum heilmikil áhrif og ef út í það er farið heilmikil völd. Þetta var ekki bara eitthvert sprell. Þetta var beitt gagnrýni og það kom fyrir að fólk hringdi í okkur til að klaga einhvern og reyna að fá okkur til að gera ákveðna hluti,“ segir Pálmi í viðtalinu.
Eins og kemur fram hér að framan segir Pálmi að það vanti þátt eins og Spaugstofuna í íslenska sjónvarpsflóru. „Flestar þjóðir eru með svona þætti. Þetta er eins og hirðfíflin í gamla daga, í svona þætti má fólk segja sannleikann án þess að vera hálshöggvið.“