Pálmi fer ó­hefð­bundna leið og fastar dögum saman – „Þú verður ein­beittari og þú verður orku­meiri“

Pálmi Gests­son, einn ást­sælasti leikari þjóðarinnar, er gestur Björns Þor­láks­sonar í þættinum Frísk eftir fimm­tugt sem sýndur er á Hring­braut.

Í þættinum segir Pálmi meðal annars frá því að hann fasti reglu­lega og það hafi reynst honum einkar vel.

„Það er sagt að meðal­maður, frekar grannur, hafi 100 þúsund auka hita­einingar í tanknum sem hann getur lifað á ef hann nær ekki í mat,“ segir Pálmi meðal annars.

Hann kveðst hafa prófað að fasta einn dag og at­huga hvernig honum liði, enda ekki víst að það henti öllum að fasta lengi í einu. Það gekk hins vegar vel svo úr varð að hann á­kvað að prófa tvo daga og svo þrjá daga.

„Og þá fór mér að líða mjög vel. Öll hugsun verður skýrari. Þú verður ein­beittari og þú verður orku­meiri. En svo er þetta líka vísinda­lega sannað,“ segir Pálmi og bætir við að líkaminn fari í „frysti­kistuna“ eftir á­kveðinn tíma í föstu og fari að vinna orku úr öðru en glú­kósa sem fer hratt út í blóð­rásina.

„Eftir á­kveðinn tíma, 16 tíma eða svo – það er ekki langur tími – þá gerist eitt­hvað sem kallast sjálfs­át og ég held það hafi verið 2016 sem vísinda­maður fékk nóbels­verð­launin fyrir að upp­götva þetta dæmi,“ segir Pálmi meðal annars og bætir við að í þessu á­standi fari líkaminn að líta í kringum sig og taka til, ef svo má segja.

Full­yrt sé að lang­tíma­föstur geti unnið gegn krabba­meini eða krabba­meins­frumum sem eru byrjaðar að myndast. Þá fari líkaminn að fram­leiða heila­frumur. Sló Pálmi á létta strengi í við­talinu við Björn og sagðist hafa orðið var við það að hann hefði næstum því náð meðal­greind með því að fasta.

Pálmi segir að þetta sé í raun allt saman mjög rök­rétt enda mann­skepnan ekki alltaf lifað í vel­lystingum þar sem næsta mál­tíð er í nokkurra skrefa fjar­lægð.

„Þegar við vorum í hellunum, þegar menn fengu ekki að borða þá lögðust þeir ekki niður og dóu. Þá fyrst urðu þeir ein­beittir og fengu inn­spýtingu í vöðvana og voru á tánum.“