Pálmar: „Er ekki kominn tími til að hætta að taka þátt í þessu?“

„Er ekki kominn tími til að hætta að taka þátt í þessu?“ Þessari spurningu varpar Pálmar Ragnars­son, körfu­bolta­þjálfari og einn vin­sælasti fyrir­lesari landsins, fram á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi. Pálmar skrifaði þar pistil um orku­drykkja­notkun Ís­lendinga sem vakið hefur verð­skuldaða at­hygli.

„Það er kominn tími til að við tölum um ruglið sem er í gangi tengt orku­drykkjum hér á Ís­landi. Ég skal byrja,“ segir Pálmar sem tekur saman nokkur at­riði máli sínu til stuðnings.

„Ís­lendingar eru að drekka allt of mikið af orku­drykkjum. Orku­drykkir eru hafa slæm á­hrif á svefn og líðan ís­lenskra ung­linga. Milljónir eru settar í að markaðs­setja þessa drykki sem heilsu­vörur þegar nær allt bendir til þess að þeir séu að hafa skað­leg á­hrif á okkur.“

Pálmar segir að svo virðist sem mörgum þyki það orðið eðli­legt að geta ekki lesið, unnið eða hreyft sig án þess að byrja á að drekka koffín­drykk. Á sama tíma og þessir drykkir séu sagðir gera okkur ferskari eru þeir í raun og veru að gera okkur þreyttari.

„Ís­lensk ung­menni eiga lík­lega heims­met í neyslu orku­drykkja. Tunnur í skólum, fé­lags­mið­stöðvum, há­skólanum og í­þrótta­húsum eru TROÐFULLAR af tómum dósum. Kannski ekki skrýtið þegar það er ekki hægt að opna sam­fé­lags­miðla án þess að sjá stans­lausar aug­lýsingar.“

Pálmar kveðst sjálfur hafa orðið háður orku­drykkjum og drukkið þrjá til fjóra flesta daga. Hann hefur ekki snert orku­drykki í tvö ár og kveðst verða miklu sjaldnar þreyttur. Þá fær hann miklu sjaldnar höfuð­verk.

Pálmar fer svo yfir nokkur at­riði sem hann hefur lært af því að vera fundar­stjóri á tveimur ráð­stefnum um ung­menni og orku­drykki. Nefnir hann frá­hvörfin sem við fáum þegar við hættum neyslunni, lítinn svefn sem rekja má til neyslu orku­drykkja, eyðsluna sem fylgir því að drekka 3-4 orku­drykki á dag, á­hrifa­valdana sem skapa normið svo ekki sé minnst á á­hrifin á tann­heilsuna.

Pálmar endar pistilinn á þessum orðum:

„Við verðum að átta okkur á því hvað normið hérna á Ís­landi er orðið brenglað. Þetta er ekki svona í öðrum löndum. Það er betra úr­val af orku­drykkjum á litlum bensín­stöðvum á Ís­landi en í stór­mörkuðum er­lendis. Við verðum líka að átta okkur á því hvað markaðs­öflin og peningar eru að hafa mikil á­hrif á á­kvarðanir okkar og hvað við sjálf erum miklar fyrir­myndir fyrir grunn­skóla­börnin okkar. Er ekki kominn tími til að hætta að taka þátt í þessu?“

Það er kominn tími til að við tölum um ruglið sem er í gangi tengt orkudrykkjum hér á Íslandi. Ég skal...

Posted by Pálmar Ragnarsson on Sunnudagur, 31. janúar 2021