Páll Vilhjálmsson bloggari, kennari og fastagestur í staksteinum Morgunblaðsins, vill ekki að málefni Jónmundar Guðmarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi bæjarstjóra á Seltjarnarnesi, séu rædd sérstaklega í íbúahópi Seltirninga á Facebook.
Greint var frá því í morgun að Jónmundur hefði verið ákærður fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Tengist ákæran félaginu Polygon og er hann sagður hafa oftalið rekstrargjöld um nærri 95 milljónir króna.
Tekið skal fram að meint brot Jónmundar voru framin eftir að hann lét af fyrrnefndum störfum og á þeim forsendum þykir Páli óþarfi að ræða þau í umræðuhópi íbúa. Ljóst er að ekki eru allir á sama máli og Páll.
„Reynum að halda þessari síðu fyrir umræðu um málefni bæjarfélagsins,“ segir Páll í fyrstu færslu sinni um málið. Þegar einn af stjórnendum síðunnar, Björn Gunnlaugsson, sem var í þriðja sæti á sameiginlegum lista Viðreisnar og Neslista fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar, biður hann að útskýra mál sitt frekar segir Páll:
„Um síðuna: ,,Við leggjum sérstaka áherslu á að öll dýrin í skóginum séu vinir og vöndum okkur að halda umræðum á málefnalegum nótum."“
Björn gefur lítið fyrir þessa útskýringu Páls og segir að verið sé að vekja máls á því að maður sem var kjörinn til æðstu metorða í bæjarfélaginu sé ákærður fyrir skattalagabrot.
„Að mínu mati á það erindi við bæjarbúa og ekkert athugavert við að það sé rætt.“
Páll bendir svo á töluvert langt sé síðan Jónmundur var bæjarstjóri og þau mál sem hann standi andspænis nú varði Seltirninga ekki beint. Þá sé hann ákærður fyrir brot framin töluvert eftir að hann lét af störfum hjá bænum.
Annar íbúi leggur orð í belg og segir: „Mér sýnist þetta heyra vel undir “málefni bæjarfélagsins”. Hvernig getum við komið í veg fyrir að slíkt endurtaki sig? Þöggun hjálpar ekki, þvert á móti.“
Páll er hins vegar harður á sínu og svarar um hæl: „Eigum við að koma í veg fyrir að einhver í framtíðinni komist í kast við lögin? Því miður, það er ekki hægt. Umrædd ákæra snýst ekki um störf bæjarstjóra, heldur það sem viðkomandi gerði eftir að störfum hans lauk fyrir bæjarfélagið.“