Páll Valur sendir Samfylkingunni kaldar kveðjur eftir að honum var hafnað

„Jæja þá liggur það ljóst fyrir að ég mun ekki skipa sæti á lista Samfylkingarinnar hér í Suðurkjördæminu góða,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, sem gaf kost á sér í eitt af efstu sætunum á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar í haust.

Páll Valur sat á þingi fyrir Bjarta framtíð árin 2013 til 2016 en á þessu kjörtímabili hefur hann verið varaþingmaður. Páll Valur hlaut árið 2016 Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða UNICEF á Íslandi, Barnaheilla og ráðgjafarhóps umboðsmanns barna.

Ferlinum lokið

„Ég tók þá ákvörðun að gefa kost á mér í framboð hér í mínu kjördæmi eftir mikla hvatningu frá fólki sem taldi mig eiga erindi á þing aftur. Ég fékk tilnefningar í fjórum kjördæmum en taldi að hér í Suðurkjördæmi myndu kraftar mínir og þekking nýtast flokknum best. Ég tók það fram við uppstillingarnefnd að ég væri að sækjast eftir forustusæti þ.e.a.s fyrsta eða öðru sæti þar sem ég tel að Samfylkingin eigi alveg raunhæfa möguleika á að bæta við sig manni í kjördæminu,“ segir Páll Valur í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í morgun.

„En dómur féll og uppstillingarnefndin tilkynnti mér það eftir að hafa setið á rökstólum í góða 66 daga (já 66 daga) að ég væri ekki ekki inn í myndinni í þessi sæti og með því má segja að stjórnmálaferli mínum á sviði landsmála sé lokið. Mun reyndar sitja sem varaþingmaður Helgu Völu í Reykjavík – norður út þetta kjörtímabil og svo er det slut.“

Páll Valur gagnrýnir það harðlega hvernig staðið er að því að raða á lista hjá Samfylkingunni. Uppstillingarnefnd sér um að raða á lista og hefur talsverð ólga verið meðal flokksmanna vegna þess. Birgir Dýrfjörð sagði sig til að mynda frá nefndinni í janúar síðastliðnum eftir að Ágústi Ólafi Ágústssyni þingmanni var hafnað af nefndinni.

Alveg glatað

„Það verður að segjast eins og er að þessi aðferð Samfylkingarinnar við að raða upp á lista er eiginlega alveg glötuð, ég hef reynt að verja þetta þar sem ákvörðun var tekin á landsfundi þar sem meirihluti samþykkti þessa leið. En það segir sig sjálft að þessi leið er eins ósanngjörn og ólýðræðisleg eins og frekast má vera,“ segir hann og rifjar upp að Samfylkingin hafi haldið rafrænan landsfund í haust þar sem hátt í 1000 meðlimir flokksins tóku þátt. Rafrænar kosningar hafi gengið snurðulaust fyrir sig.

„Rafrænar kosningar eru framtíðin og Samfylkingin hefði getað og átt að bjóða félögum sínum upp á framboðsfundi frambjóðenda á netinu þar sem hver og einn hefði getað kynnt sig og áherslur sínar og í kjölfarið hefði mátt hafa rafræna kosningu þar sem úrslit og listi myndi liggja fyrir valinn af fólkinu í flokknum,“ segir Páll Valur sem kveðst vona að Samfylkingin dragi lærdóm af þessari „mjög svo óskemmtilegu aðferð“ eins og hann orðar það. Segir hann að aðferðin hafi ekkert gert nema sundra og skapa leiðindi.

„En hvað sem öðru líður þá er þessum kafla í lífi mínu lokið, þetta hefur verið afskaplega skemmtilegt og lærdómsríkt ferli sem hefur að ég held styrkt mig sem manneskju. Ég held ég geti sagt að ég hafi lagt mig allan fram við að standa með minni sannfæringu og verið sjálfum mér samkvæmur og geng nú bara þokkalega sáttur frá borði þó að sjálfsagt hafi verið hægt að gera betur eins og gengur og gerist. Það sem stendur eftir að ég hef fengið að kynnast ótrúlegum fjölda af stórkostlegu fólki úr öllum flokkum og eignast góða vini fyrir lífstíð sem þegar upp er staðið það dýrmætasta þegar öllu er á botninn hvolft.“

Páll Valur segist að lokum vona að kosningarnar í haust verði drengilegar og útkoman verði ríkisstjórn félagshyggju og jafnaðar sem tekur mannréttindi og skyldur sínar til að tryggja fólki jöfn tækifæri alvarlega. Þá tryggi hún að allir þegnar þjóðarinnar fá notið arðs af auðlindum sínum, ekki bara fáeinir útvaldir.

„Þannig og aðeins þannig getum við búið hér til gott og réttlátt samfélag, samfélag sem ræktar heiðarleika, kærleika og ábyrgð ásamt hófsemd og auðmýkt, samfélag sem setur málefni barna sinna og þeirra sem höllustum fæti standa í samfélaginu í forgang, samfélag sem tekur opnum örmum nýjum þegnum sem hér vilja búa, og síðast en ekki síst tryggir eldri borgurum sínum áhyggjulausa göngu inn í sólarlag lífs síns.“