Páll Skúla­son er látinn: „Létu sig dreyma um höll sum­ar­lands­ins“

Páll Skúla­­son lög­­fræðing­ur og rit­stjóri frá Bræðra­tungu fædd­ist 30. júlí 1940. Hann lést á heim­ili sínu á Presta­­stíg 9, Reykja­­vík, 25. mars 2020.

Páll varð héraðs­dóms­­lög­maður 15. júlí 1969. Á löngum starfs­­ferli vann hann á lög­­manns­­stofu, var full­­trúi hjá rík­is­skatt­­stjóra, á bóka­­söfn­um, full­­trúi hjá yf­ir­­borg­ar­­fóg­et­an­um í Reykja­­vík, stundaði út­­gáfu- og rit­störf og rak lög­­manns­­stofu, var fram­­kvæmda­­stjóri Fé­lags mennta­­skóla­­kenn­ara og stunda­­kenn­ari við Há­­skóla Ís­lands. Hann gaf út tíma­­ritið Bóka­or­m­inn og síðan tíma­­ritið Skjöld. Meðal rita hans má nefna bæk­ur um sam­­eign­ar­­fé­lög, hluta­­fé­lög og einka­hluta­­fé­lög.

Páll var einnig for­maður Dansk-ís­­lenska fé­lags­ins um langa hríð.

Páll Skúlason ritstjóri og lögfræðingur

Páll giftist í desember 1982 Elísa­betu Sig­ríði Gutt­orms­dótt­ur en hún starfaði sem deild­ar­­stjóri hjá Ráðning­ar­­stofu Reykja­vík­ur­­borg­ar. Páll og Elísa­bet bjuggu lengst af í Reykja­­vík. Þau voru barn­­laus. Elísa­bet dó 14. des­em­ber 2017.

Tryggvi V. Lín­­dal. Þjóð­fé­lags­fræðingur og skáld segir um Pál í minningar­grein í Morgun­blaðinu:

„Var hann og jafn­an sér­­­lega hlý­­leg­ur, kank­vís og ein­læg­ur í við­móti.“

Hall­dór Frið­rik Þor­steins­son, rit­höfundur og fyrrum eig­andi HF Verð­bréfa og sjóð­fé­lagi Frjálsa líf­eyris­sjóðsins segir:

„Það muna hann marg­ir spor­létt­an á stræt­um borg­ar­inn­ar, í ljós­brún­um ryk­frakka með skjala­­tösku. Í henni var Skjöld­ur hans til­­bú­inn til prent­un­ar, fá­­gæt­ur fjár­­sjóður við­tala og þjóð­legs fróð­leiks.“

Páll var einn af þeim mönn­um sem hefðu getað sest inn á hvaða kaffi­hús sem var í heim­in­um og dreg­ist fljótt að mið­borði fasta­­gesta. Virðu­legt yf­ir­bragðið bar með sér góð­vild og svo kunni hann sam­ræðu­list á sinn fágaða hátt, þar sem hann fiktaði að­eins í hvítu yf­ir­­skegg­inu með feimn­is­­leg­um hætti.

Það var líkt og að vera stadd­ur á góðri leik­­sýn­ingu að sitja aðal­­fund Út­gáfu­­fé­lags­ins Sleipn­is, sem gaf út Skjöld, mál­­gagn Páls Skúla­­son­ar. Þar var margt ó­væntra dag­­skrár­liða og um­­­mæla sem ein­ung­is er hægt að finna í úr­­vals­­rit­um heims­ins. Ég er þakk­lát­ur fyr­ir sam­­fylgd­ina með Páli hin síðustu ár. Það voru góð og gef­andi kynni.

Þegar Elísa­bet Gutt­orms­dótt­ir, ömmu­­syst­ir mín, kvaddi jarð­vist­ina fyr­ir tveim­ur árum þvarr lífs­vilji Páls, slík­ir sálu­­fé­lag­ar og sam­­starfs­­menn höfðu þau verið. Þau bættu hvort annað upp eins og góð hjón gera, og gátu vart hvort án ann­ars verið. Sam­an áttu þau ynd­is­reit í Hest­landi við bakka Hvít­ár þar sem þau á­samt Páli Gutt­orms­­syni gróður­­settu trjá­­plönt­ur og létu sig dreyma um höll sum­ar­lands­ins.

Sú höll bíður betri tíma með nýj­um fyr­ir­heit­um. Eft­ir standa Skild­irn­ir þeirra, blikandi í vor­­sól­inni.“

Út­för Páls fer fram í kyrr­þey 7. apríl 2020, með þeim tak­­mörk­un­um sem fylgja far­­sótt­inni í þjóð­fé­lag­inu. Jarð­sett verður í Bræðra­tungu­­kirkju í Bisk­up­stung­um sama dag. Minn­ing­ar­at­höfn verður hald­in síðar.