Páll skip­stjóri tjáir sig um sam­einingu Kjarnans og Stundarinnar: „Þið lásuð þetta fyrst hér“

Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri Sam­herja, sem lá lífs­hættu­lega veikur á Land­spítalanum þegar sími hans var tekinn hefur á­kveðið að tjá sig um sam­einingu Kjarnans og Stundarinnar.

Fjórir blaða­menn fengu stöðu sak­bornings fyrir að hafa unnið fréttir upp úr síma Páls en þeir hafa neitað fyrir að hafa stolið símanum.

Lög­reglan er einnig sögð vera rann­saka mögu­lega byrlun á Páli en blaða­mennirnir neita al­farið fyrir að hafa komið eitt­hvað ná­lægt Páli í málinu. Nú þegar miðlarnir tveir hafa sam­einast á­kvað Páll að tjá sig undir færslu a frétt Vísis.

„Jæja byrjað að sam­eina ruslið, hve­­nær ætli RÚV sam­einist þessu rusli líka,“ skrifar Páll undir frétt Vísis. Hann er spurður hvað hann eigi við við með ruslið og svara því sjálfur um hæl.

„Spáði því að þetta yrði gert svona áður en þessi frétt fór í loftið "Þetta er trú­­lega mesta ekki frétt ársins, þarna eru sak­­borningar RSK-MIÐLA að föndra bjarg­hring fyrir rit­­stjórann á kjarninn.is, því fari svo að sak­­borningurinn Þórður Snær verði á­kærður þá er greini­­legt að eig­endur að miðlinum kjarninn.is ætla ekki að dæla fjár­­magni inn í miðillinn til þess að bjarga honum, og hann mun því sam­einast stundin.is undir nýrri kenni­­tölu og mögu­­lega nýju nafni og þá getur sak­­borningurinn Þórður Snær haldið á­­fram að skálda lang­­lokur sínar þar, en sak­­borningurinn Aðal­­­steinn Kjartans­­son á stundin.is var nefni­­lega starfs­­maður RÚV og mun því RÚV taka skellinn fyrir stundin.is, en trú­­lega mun stundin.is sleppa á laga­­tækni­­legu at­riði en á pappírum er rit­­stjórn blaðsins ekki upp í Efsta­­leiti þó hún sé það í raun. Og munið þið lásuð þetta fyrst hér,“ skrifar Páll.

Flestir reka upp stór augu yfir færslu hans en sumir virðast þó sam­mála honum.