Páll skipstjóri með yfirlýsingu: „Síðustu dagar hafa verið mér og mínum mjög erfiðir“

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, hefur sent frá sér yfirlýsingu á Facebook vegna frétta af rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Fjórir blaðamenn hafa verið boðaðir til yfirheyrslu vegna fréttaflutnings af skæruliðadeild Samherja, en grunur leikur á að upplýsingarnar sem birtust í fréttunum hafi verið fengnar úr síma Páls sem hvarf í maí 2021.

Ekki er talið að umræddir blaðamenn hafi stolið símanum heldur eru þeir grunaðir um brot gegn lögum um friðhelgi einkalífsins með því að nota gögn úr síma hans. Páll lá veikur á Landspítalanum þegar sími hans hvarf.

„Kæru vinir, ættingjar og samstarfsmenn. Síðustu dagar hafa verið mér og mínum mjög erfiðir enda hátt reitt til höggs og yfirlýsingar ekki sparaðar. Ég bý hins vegar svo vel að eiga góða að og hefur stuðningur eigenda Samherja og starfsmanna fyrirtækisins verið mér ómetanlegur,“ segir Páll í yfirlýsingu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni.

Hann kveðst líka vera djúpt snortinn yfir stuðningi vina, kunningja og jafnvel ókunnugs fólks sem hefur haft fyrir því að senda honum falleg skilaboð og hringja.

„Ég skil vel að marga svíði undan óréttlætinu en vil biðja fólk um að gæta hófs í orðum í garð þeirra fjölmiðlamanna sem nú hafa stöðu sakbornings í sakamálarannsókn lögreglunnar. Slík formleg staða er ekki ávísun á sekt heldur veitir sakborningum mikilvæg réttindi til að gæta hagsmuna sinna. Gleymum því ekki heldur að þessir aðilar eiga fjölskyldur, börn, maka, foreldra, systkini og vini sem sárnar umræðan skiljanlega. Orð geta sært,“ segir Páll.

Hann bætir við að hann hafi fulla trú á því að lögregla vinni að rannsókn þessa máls af heilindum og hún muni leiða hið sanna í ljós.

„Vil ég því biðja ykkur um að sýna lögreglu biðlund en ég er þess fullviss að þið munið skilja þögn mína þegar sá tímapunktur kemur að upplýst verði opinberlega um málið. Þar sannast hið fornkveðna að bylur hæst í tómri tunnu. Undanfarnir mánuðir hafa tekið mjög á mig og fjölskyldu mína en það hefur veitt mér styrk að finna stuðninginn frá ykkur. Er ég ykkur afar þakklátur og bið ykkur um að hafa orð mín í huga.“

Páll lætur svo fylgja með neðst að hann hafi skrifað yfirlýsinguna alveg sjálfur, en látið prófarkalesa hana með tilliti til stafsetningar.