Páll Sigurðsson, læknir og ráðuneytisstjóri til fjölmargra ára, er látinn. Greint er frá andláti Páls í Morgunblaðinu í dag en hann fæddist 9. nóvember 1925 og var því á 95. aldursári.
Páll lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 1952 og sérnámi í bæklunarskurðlækningum frá Svíþjóð árið 1956. Hann starfaði meðal annars á Landakoti og sem sérfræðingur á slysavarðstofunni.
Páll var skipaður ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu árið 1970 og gegndi hann því embætti til ársins 1995 að hann lét af störfum.
Hann sat í stjórn Læknafélags Reykjavíkur og var um tíma formaður Skurðlæknafélags Íslands. Þá var hann borgarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavík á árunum 1966 til 1970. Páll fékk fálkaorðuna árið 1978 en hann sinnti fjölmörgum trúnaðarstörfum á starfsferli sínum.
Hann kvæntist Guðrúnu Jónsdóttur geðlækni árið 1949 en Guðrún lést í nóvember í fyrra. Börn þeirra eru Jónína, tannlæknir og Ingibjörg lyfjafræðingur, Dögg hæstaréttarlögmaður, Sigurður Páll geðlæknir og Jón Rúnar hæstaréttarlögmaður. Barnabörn þeirra eru níu og barnabarnabörnin eru sautján.