„Alveg er það dæmigert fyrir Íslendinga að það er fullt að fólki sem finnst það allt í lagi að hópur af konum sem ekki eru í sömu fjölskyldu/búi hvort sem er saman, slái sér í hópmynd þar sem 2 m reglan er svo greinilega brotin.“
Þetta segir Páll Þórðarson, prófessor við háskólann í Sydney, um mál Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur en myndir sem birtust af henni og vinkonum hennar um helgina vöktu mikla athygli, enda ljóst að þar var tveggja metra reglan þverbrotin.
Myndirnar þykja óheppilegar fyrir Þórdísi enda birtust þær skömmu eftir að tilkynnt var um harðari aðgerðir á landamærunum til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Þá hafa yfirvöld hamrað mjög ákveðið á að fólk virði tveggja metra regluna svokölluðu.
Páll vakti heimsathygli fyrr á þessu ári fyrir færslu sína um handþvott og hvernig hann getur gert út af við COVID-veiruna. Páll er vel að sér í þessum fræðum enda efnafræðingur að mennt og með mikla og langa reynslu. „Ég hef alltaf verið hugfanginn af veirum,“ sagði hann til dæmis í viðtali við RÚV í mars síðastliðnum, um það leyti sem COVID-19 fór að dreifa sér um heimsbyggðina.
Í opinni færslu sem Páll skrifar á Facebook segir hann viðbrögð margra Íslendinga dæmigerð.
„Sóttvarnarreglur eru greinilega eitthvað sem stórum hluta Íslendinga finnst bara að fólk geti ákveðið hvenær það þurfi að fylgja. T.d. að ef maður fer að djamma og er í smá fríi frá vinnunni og maður sé "bara með vinkonum" geti kórónuveiran ekki borist á milli fólks. Er von að þurfi að loka landinu ef fólk skilur ekki einu sinni hvernig sóttvarnarreglur virka?,“ segir hann.
Þórdís Kolbrún sagðist hafa átt langþráðan frídag á laugardag. Hún hafi hitt vinkonur sínar og borðað með þeim í hádeginu og um kvöldið. Sagði hún að dagurinn hefði verið nærandi en eftir á að hyggja hefði verið auðveldara að hitta ekki vinkonurnar.