Páll segir sjötta dauðs­fallið yfir­vofandi – 60 með virk smit á Landspítala

Páll Matthías­son, for­stjóri Land­spítalans, segir að 68 ein­staklingar liggi nú inni á Land­spítalanum vegna CO­VID-19. Þar af eru 60 með virk smit en 8 ein­staklingar með mót­efni.

Eins og kom fram í fréttum í morgun urðu fimm and­lát á Land­spítalanum um helgina vegna CO­VID-19. Til­kynnt var um tvö and­lát í gær­morgun og þrjú í morgun, en í öllum til­vikum er um að ræða aldraða ein­stak­linga.

Á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna í morgun sagði Páll að sjötta dauðs­fallið væri yfir­vofandi. And­lát í þessari bylgju far­aldursins eru orðin þrettán og tíu virðast tengjast hóp­smitinu sem kom upp á Landa­koti. Alls hafa 23 látist vegna COVID-19 síðan veiran greindist fyrst hér á landi í lok febrúarmánaðar.

„Ég vil fyrir hönd starfs­fólks Land­spítala segja að hugur okkur er hjá að­stand­endum þessa fólks sem veiran hefur nú lagt að velli,“ sagði Páll.

Víðir Reynis­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði undir lok fundarins að mark­mið yfir­valda væri að verja heil­brigðis­kerfið, við­kvæma hópa og inn­komu veirunnar á landa­mærum. Þá minnti Víðir á að enn væru að koma upp dæmi um klasa­myndanir á vinnu­stöðum og í kringum aðra starf­semi. Minnti hann á mikil­vægi þess að fólk hugi að sótt­vörnum, haldi fjar­lægð, noti grímur og ef ein­kenna verður vart skuli við­komandi fara í sýna­töku og ein­angrun uns niður­staða fæst úr sýna­töku.