„Stutta svarið er já, það er ákveðið vandamál hvað það eru mörg bílastæði í miðbæ Reykjavíkur,“ segir Páll Tómas Finnsson, upplýsingaráðgjafi og áhugamaður um vistvæna borgarþróun, í aðsendri grein á vef Vísis.
Páll Tómas segir að það sé í mun ódýrara að leggja í miðborg Reykjavíkur en í höfuðborgum nágrannalanda okkar og andstætt því sem verslunarmaðurinn Bolli Kristinsson hélt fram í auglýsingu á dögunum hafi stæðum í miðborginni fjölgað síðustu ár.
Páll tekur fjölda bílastæða saman og segir að almannningsstæði og stæði í bílastæðahúsum séu ríflega sjö þúsund talsins. Þessu til viðbótar séu einkastæði á yfirborði og í bílageymslum tæplega 3.500 talsins. Samtals séu þetta því tíu þúsund stæði.
Þá ber Páll saman kostnaðinn við að leggja í miðborg Reykjavíkur í samanburði við höfuðborgir Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Segja má að kostnaðurinn þar sé talsvert meiri en hér á landi.
„Fyrsta klukkustundin á gjaldsvæði 1 í Reykjavík kostar nú 370 krónur og 190 krónur á gjaldsvæðum 2-4. Til samanburðar kostar fyrsta klukkustundin á dýrasta gjaldsvæðinu í Stokkhólmi 770 krónur (SEK 50) og 830 krónur í Kaupmannahöfn (DKK 38). Í Osló er gjaldið fyrir alla aðra en rafmagnsbíla 1075 krónur fyrir fyrstu klukkustundina (NOK 73), en síðan bætast við heilar 1444 krónur fyrir næstu klukkustund þar á eftir (NOK 98). Það er með öðrum orðum tvisvar til fjórum sinnum dýrara að leggja í miðbæ þessara borga en í miðbæ Reykjavíkur,“ segir Páll í grein sinni og segir að það sé því full ástæða til þess að hvetja fólk til að nýta sér þessa aðstöðu og njóta hins fjölbreytilega mannlífs sem miðborgin hefur upp á að bjóða.
„Enn vænlegra væri að sjálfsögðu að hjóla eða taka strætó í bæinn þannig að þörfin fyrir allan þennan fjölda bílastæða minnki með tímanum.“