„Að mínum dómi er þetta er valdníðsla,“ segir Páll Hauksson, ökukennari á Patreksfirði, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Páll hefur síðan í haust, í samvinnu við Ökuskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, reynt að koma á námskeiði í auknum ökuréttindum á Patreksfirði. Páll segir að þetta hafi tekist í ársbyrjun, eftir að slakað var á í sóttvörnum vegna kórónuveirufaraldursins þann 7. janúar síðastliðinn.
„Eftir að fræðilegu námi lauk, og verklegi hlutinn hafinn á vörubíl, hafði ég samband við Frumherja, sem sér um framkvæmd ökuprófa á Íslandi. Eftir samtal við forstöðumann prófadeildar Frumherja tjáði hann mér að samkvæmt reglum Samgöngustofu væru ekki framkvæmd ökupróf á Patreksfirði frá 15. nóvember til 15. mars ár hvert. Í skjóli ófyrirsjáanlegra aðstæðna sem við öll þekkjum bað ég um undanþágu frá þessari reglu svo ÖR-próf gæti farið fram, sem er fræðilegt próf í námslok, og við í framhaldi klárað verkefnið með verklegum prófum síðar. Af hálfu Frumherja eru starfsmenn þar tilbúnir að sinna prófum hvar og hvenær sem er, en Samgöngustofa bannar það nema á fyrrgreindu tímabili, 15. mars til 15. nóvember ár hvert, og enginn möguleiki á undanþágu í skjóli Covid-aðstæðna.“
Páll er verulega ósáttur við þetta og bendir á að fjölmargir einstaklingar á svæðinu séu að bíða eftir því að fá aukin réttindi.
„Að mínum dómi er þetta er valdníðsla af hálfu yfirmanns ökunáms hjá Samgöngustofu sem sýnir vald sitt á neikvæðan hátt. Þarna er engin ástæða til synjunar nema almanakið og „af því bara“. Allar götur frá því land byggðist hafa samgönguleiðir á milli norður- og suðursvæða Vestfjarða verið ófær allan veturinn og því erfitt um vik með ökupróf á þeim tíma sem tekið hefur verið tillit til. Tilkoma Dýrafjarðarganga styttir leiðina um 27 km og leysir af hólmi veginn um Hrafnseyrarheiði sem var snjóþyngsti og einn hættulegasti vegur landsins. Þar með stórbatna samgöngur milli suður- og norðursvæðis Vestfjarða og heilsársvegur orðinn staðreynd. Því er hægt með fyrirhyggju að þjóna suðursvæði Vestfjarða betur á sviði ökuprófa og mál að endurskoða þessa reglu.“
Páll bendir á að 145 kílómetrar séu á milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar, þar sem prófdómari hefur aðsetur, og nefnir að í sumar verði lagt slitlag á hluta leiðarinnar. 120 kílómetrar verða því með bundnu slitlagi næsta haust.
„Snjómokstur er á milli svæða alla virka daga. Þrátt fyrir þetta beitir yfirmaður ökunáms þeirri valdníðslu og yfirmannsstælum gagnvart okkur að leyfa ekki undanþágu fyrir próf í vetur. Hér er verið að tala um starfsnám til aksturs stórra bíla, s.s. vörubíla, með og án eftirvagna og fólksflutningabíla (rútur), en ekki bútasaum eða sláturgerð, með fullri virðingu fyrir þeim. Á námskeiðinu sem valdníðingur Samgöngustofu vill ekki leyfa okkur að klára eru 15 manns sem vilja auka möguleika sína í starfi og vantar til starfa á svæðinu vegna aukinna flutninga til þess og frá, þar sem mikil uppbygging er í laxeldi og -vinnslu. Einnig eru þar sjúkraflutningamenn sem vantar réttindi til aksturs sjúkrabíls.“
Páll kallar eftir því að ökukennarar, starfsmenn Frumherja og Samgöngustofi vinni saman í metnaðarfullu ökunámi sem skilar samfélaginu góðum ökumönnum á öllum stigum þess og jöfnuður ríki til náms alltaf og alls staðar.
„Til fróðleiks má geta þess að þegar þessar reglur „október – mars“ voru settar var leiðin um Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði lokuð allan veturinn og varð sá eða sú sem átti erindi á milli staða að vetri að aka 640 km um Laxárdalsheiði og Djúpið. Síðar er Þröskuldar eru gerðir er sú leið 445 km. Styttist því akstur um 195 km. Nú í vetur er í fyrsta sinn heilsársvegur á milli svæða, um 145 km, og því ber að fagna og nýta.“