Páll Óskar: Við eigum eftir að ranka við okkur – „Þetta er allt lygi“

Páll Óskar Hjálm­týs­son, einn ást­sælasti tón­listar­maður þjóðarinnar, gefur sam­fé­lags­miðlum ekki háa ein­kunn en sjálfur notar hann þá einungis vegna vinnu sinnar en ekki til að deila einka­lífi sínu.

Páll Óskar var í at­hyglis­verðu við­tali í Mann­lega þættinum á Rás 1 þar sem hann ræddi meðal annars um sam­fé­lags­miðla. „Ég sit stundum fyrir framan tölvu­skjáinn og fylgist með fólki hnakkrífast, skít­kast í allar áttir, allir hafa rétt fyrir sér og allir eru að kafna úr skoðunum. Það eina sem gerist hjá mér er að axlirnar sökkva og ég missi trúna á mann­kyninu.“

Páll Óskar segir að sam­fé­lags­miðlar séu ekki eitt­hvað sem börn og ung­lingar ættu að sækjast í. „Þeim líður ekki vel á Insta­gram þar sem allir eru með stór brjóst og full­kominn rass og kröfurnar eru orðnar gígantískar,“ segir hann og bætir við að svo­kallaðir filterar séu settir á myndirnar sem við sjáum áður en þær eru settar inn.

Sem fyrr segir notar Páll Óskar sam­fé­lags­miðla fyrst og fremst vegna vinnu sinnar, en þegar hann setur eitt­hvað inn verður hann hel­tekinn af því hversu margir læka færslurnar. Segist hann verða læksjúkur og dagarnir fari í þetta. Hann segist vona að næsta kyn­slóð, þau börn sem nú eru að fæðast, sjái í gegnum þetta og snúi bakinu við þessum miðlum.

„Ég held að það verði kyn­slóðin sem gefur sam­fé­lags­miðlum fingurinn. Þetta er kyn­slóðin sem á eftir að ranka við sér og fatta að læk­takkinn er lygi. Þetta er allt lygi. Þetta er allt per­for­mans.“

Við­talið við Pál Óskar má nálgast hér.