Páll Óskar Hjálmtýsson greindi frá því fyrir skömmu á Facebook síðu sinni að óprúttinn aðili á stefnumótaforritinu Grindr hefði dreift nektarmyndum af Palla í óþökk hans.
„Já, gott fólk. Svona lít ég út,“ skrifar Palli sem virðist lítið láta brotið á sig fá.
„Fávitinn, sem ég sendi þessar myndir í trúnaði á Grindr og er nú að dreifa þeim út um allt - til að fá mig til að skammast mín fyrir að hafa líkama og lifa kynlífi - er rúmlega 30 árum of seinn! Njótið vel,“ skrifar Páll.
Hann minnir á að ósamþykkt dreifing á persónulegum myndum varði við lög. Þau voru samþykkt á Alþingi þann 17. febrúar 2021 síðastliðinn. Lætur Palli skjáskot fylgja.