Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson opinberaði í gær hvaða flokk hann kaus í kosningunum á laugardag. Það gerði Páll í athugasemd við færslu Ingibjargar Daggar Kjartansdóttur, ritstjóra Stundarinnar, þar sem hún gerði árangur VG í kosningunum í Reykjavík að umtalsefni.
Í færslu sinni sagði Ingibjörg Dögg að oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, Líf Magneudóttir, hafi rangt fyrir sér þegar hún segir að borgarbúar hafi hafnað hugmyndum flokksins um kvenfrelsi, umhverfisvernd og félagslegt réttlæti þegar þau kusu ekki flokkinn. Sagði Ingibjörg að kjósendur flokksins hafi einfaldlega farið annað með atkvæði sín.
Líklega til Samfylkingar fyrir kvenfrelsi, Pírata fyrir umhverfisvernd og Sósíalista fyrir félagslegt réttlæti,“ sagði hún.
Páll Óskar skrifaði athyglisverða athugasemd við færsluna og sagði:
„Hárrétt greining. Stuðkveðjur frá fyrrverandi kjósanda VG sem kaus Sósíalista í gær.“