Páll Óskar og Rúrik styðja Guðna: „Munum að kjósa“

Kosningar til for­seta Ís­lands fara fram laugar­daginn 27. júní en þeir Guðni Th. Jóhannes­son og Guð­mundur Frank­lín Jóns­son keppast þar um að fá að sitja sem for­seti næstu fjögur árin.

Fjöldi fólks hefur hvatt fólk til að kjósa á kjör­dag en stuðnings­menn Guðna hafa hleypt af stað á­taki til að styðja sitjandi for­seta.

Meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við Guðna eru stór­söngvarinn Páll Óskar Hjálm­týs­son og lands­liðs­maðurinn Rúrik Gísla­son en þeir hafa báðir birt færslur á Insta­gram til að hvetja fólk til að kjósa undir myllu­merkjunum #kjósu­möll og #Ég­kýs­Guðna.

Sjá einnig: Ný könnun: Guðni með yfirburði – Stuðningsmenn Donald Trump styðja Guðmund

„Það eru for­seta­kosningar á Ís­landi og kjör­dagur er 27. júní en ég er bara mættur strax hingað í Laugar­dalinn að kjósa utan kjör­fundar,“ segir Páll Óskar í mynd­bandi sem hann birtir á Insta­gram. „Ég vil kjósa út af því að ég ber virðingu fyrir kosninga­rétti mínum fyrir það fyrsta, og ég vil líka bera virðingu fyrir for­seta­em­bættinu sem slíku.“

„Ef þú mætir ekki á kjör­stað og kýst nú þá gerir það bara ein­hver annar fyrir þig og jafn­vel kýs eitt­hvað sem þú vilt ekki. Ég kýs Guðna Th., #kjósum öll!“

Þá birti Rúrik mynd af sér með Guðna og Elizu. „Kjör­dagur er 27. júní! Munum að kjósa,“ skrifar Rúrik við færsluna og með fylgja myllu­merkin #kjósu­möll og #ég­kýs­guðna. Alls hafa rúm­lega á­tján þúsund manns líkað við færsluna en Rúrik er með 831 þúsund fylgj­endur.