Páll Óskar fallinn fyrir Tenerife eins og aðrir Íslendingar

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson segist vera fallinn fyrir Tenerife rétt eins og aðrir Íslendingar. Hann er í skemmtilegu viðtali í Fréttablaðinu í dag þar sem hann ræðir meðal annars um eyjuna fögru, en Páll Óskar hélt vel heppnað Pallaball á Tenerife á gamlárskvöld.

Í viðtalinu kemur fram að hann hafi verið á leið í sundlaugargarðinn við hótelið á Tenerife þegar blaðið náði tali af honum. „Maður verður að tana smá,“ er haft eftir honum.

Færri komust að en vildu á ballinu með Palla á gamlárskvöld og bætti hann því við öðru balli á nýársdag.

„Þetta var stórkostleg upplifun í alla staði. Það fór bara allt á hliðina enda mikill fjöldi Íslendinga á staðnum,“ segir hann í viðtalinu en Palli heimsótti Tenerife í fyrsta skiptið í október síðastliðnum til að kanna aðstæður fyrir Pallaball og hvort það væri yfir höfuð hægt að halda það á eyjunni.

„Svali Kaldalóns, sem býr á Tenerife og er með ferðaskrifstofuna tenerifeferdir.‌is, var mér innan handar en hann hefur leyfi til að vera með viðburði á staðnum. Þetta endaði auðvitað með því að ég þurfti að gera tvö böll sem haldin voru á Íslendingabarnum St. Eugens.“

Palli er hrifinn af Tenerife – skiljanlega myndu margir segja.

„Það er mikið líf hérna, alls staðar fólk á gangi að nýta birtuna og góða veðrið. Mér finnst svæðið skemmtilega skipulagt, breiðar gangstéttar og þar af leiðandi nægilegt pláss fyrir gangandi vegfarendur. Auk þess eru mjög góðir veitingastaðir. Ég get vel hugsað mér að gera Pallaball hér á Tene næstu árin á gamlárskvöld. Við Svali höfum verið að svipast um eftir stærri sal til að vera með eitt stórt Pallaball í lok ársins. Ég er alveg til í að vera í 25 stiga hita á þessum árstíma það sem eftir er,“ segir hann.