Íslenska ríkið stefnir að því að hefja formlegar samningaviðræður við Landsbankann um kaup á norðurhúsinu við Austurbakka sem er í byggingu. Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að húsnæðið, sem er við hliðina á Hörpu, sé nútímalegt og sveigjanlegt skrifstofuhúsnæði sem hægt er að sérsníða að þörfum Stjórnarráðsins innan skamms tíma.
Heildarkostnaður byggingarinnar nemur tæplega 12 milljörðum króna, en áður hafði verið stefnt að 9 milljarða kostnaði.
Margir gera athugasemd við þetta, þar á meðal Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem segir á Facebook:
„Af hverju þarf ríkið að kaupa dýrasta skrifstofuhúsnæði landsins undir kontóra fyrir stjórnarráðið? Er bruðlið orðið algjörlega stjórnlaust?“
Karl Garðarsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, er jafn agndofa og Páll, en hann segir:
„Stutta svarið er já.“