Páll með samsæriskenningu: Var eitrað fyrir skipstjóranum? – „Fjölmiðlar þegja sem gröfin“

Páll Vilhjálmsson, bloggari og kennari í Borgarholtsskóla, ritar athyglisverða færslu á bloggsíðu sinni í dag þar sem umfjöllunarefni hans er lögreglurannsókn á mögulegri eitrun Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja og einum meðlima svokallaðrar skrímsladeildar Samherja.

Eins og frægt er var síma Páls Steingrímssonar stolið á meðan hann lá í öndunarvél á sjúkrahúsi og vart hugað líf. Gögnum úr síma hans var lekið til RÚV, Stundarinnar og Kjarnans og nú stendur yfir lögreglurannsókn á málinu, ásamt því hvernig til kom að Páll þurfti skyndilega að leggjast inn á sjúkrahús. Orsökin er enn óráðin.

Páll Vilhjálmsson segir Ríkisútvarp allra landsmanna þátttakanda í lögreglurannsókn og ýjar að því að Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, gæti farið í fangelsi.

Færsla Páls V. hefst svona: Lögreglan fékk lífssýni af Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja í tengslum við rannsókn á lífshættulegu tilræði þegar síma Páls var stolið 4.maí í vor. Síma Páls var stolið þegar hann lá í öndunarvél á gjörgæslu. Rannsókn lögreglu beinist m.a. að því að greina ástæður skyndilegra lífshættulegra veikinda skipstjórans. Í tölvupósti til Páls er hann beðinn um lífssýni til að ,,finna út hvort þú hafir orðið fyrir eitrun,““ segir Páll Vilhjálmsson.

Hann heldur áfram og segir fjölmiðlaherferð í gangi gegn Samherja: „Með tölvupósti er Páll einnig beðinn um heimild að tæknideild lögreglunnar afli upplýsinga hjá fjarskiptafyrirtækjum um ,,hvar síminn var á meðan þú varst meðvitundarlaus“. Þær upplýsingar staðfesta að sími Páls fór um hendur starfsmanna RÚV sem stálu úr símanum gögnum. Þau gögn voru notuð af RÚV, Stundinni og Kjarnanum í fjölmiðlaherferð gegn Samherja.“

Páll Vilhjálmsson heldur því fram að RÚV, Kjarninn og Stundin séu meðsek: „Rannsókn málsins er langt komin. Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra fer með forræði rannsóknarinnar. Hún hefur verið í Reykjavík alla þessa viku. Búið er að yfirheyra starfsmenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans. Efnisatriði í drög að skýrslu liggja fyrir. Atburðarásin, með tímalínum og atvikalýsingum, er kunn. Andleg vanheilsa grunaðra hefur verið rannsökuð og læknisvottorð metin.“

Hann gerir verulegar athugasemdir við vinnubrögð annarra fjölmiðla: „Fjölmiðlar þegja sem gröfin. Samfélag blaðamanna er fámennt. Menn eru vinir, kunningjar og samstarfsmenn, núverandi, fyrrverandi eða verðandi. Í vina- og hagsmunatengslum vill gleymast að starf blaðamanna er að upplýsa almenning um mikilsverð mál,“ segir Páll.

Hann segir RÚV bendlað við banatilræði: „Ekki verða fréttamálin öllu stærri en þegar ríkisfréttastofa er bendluð við banatilræði og þaulskipulagðan gagnastuld frá manni sem liggur meðvitundarlaus í öndunarvél. Sá sem ekki sér fréttina, tja, hann er ekki blaðamaður heldur hagsmunavörður.“

Páll ýjar að því að Rakel Þorbergsdóttir, fráfarandi fréttastjóri RÚV, fari sömu leið og hann segir Stefán stefna á; í fangelsi: „Á Efstaleiti er aftur það að frétta að fréttastjórinn Rakel hættir, sumir vilja í langt námsleyfi á meðan aðrir huga að nýjum vettvangi. Varla þó blaðamennsku. Afplánun telst ekki atvinna. Stefán útvarpsstjóri getur ekki ráðið fréttastjóra með aðsetur á Litla-Hrauni eða Kvíabryggju. Þess vegna bíður hann með að auglýsa starfið.“