Páll Magnússon orðinn langafi, 66 ára að aldri: „Í mínum huga heitir hann Ljónshjarta“

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum útvarpsstjóri, er nú orðinn langafi en Páll deilir fréttunum á Facebook síðu sinni. Um er að ræða son dótturdóttir hans en drengurinn fæddist í lok september.

„Þessi litli drengur er fyrsta langafabarnið mitt. Hann hefur enn ekki fengið nafn en í mínum huga heitir hann Ljónshjarta þangað til annað kemur í ljós,“ segir Páll í færslu sinni um málið en drengurinn fæddist níu vikum fyrir tímann.

Erfiðar vikur en brosir samt framan í heiminn

Að sögn Páls komu ýmis vandamál upp eftir snemmkomu drengsins og var hann minna en tvö kíló að þyngd þegar hann fæddist. Drengurinn hefur þurft að fara í þó nokkrar aðgerðir, margoft fengið sýkingu og þurft að undirgangast fjölmargar lyfjameðferðir.

„Samt brosir hann framan í heiminn; orðinn meira en 3 kíló og bíður eftir - vonandi - síðustu aðgerðinni. Í covid fjarlægð fylgist maður fullur aðdáunar og vonar með hetjulegri baráttu Ljónshjartans, foreldranna og heilbrigðisstarfsfólks fyrir lífinu,“ segir Páll að lokum.

Færslu Páls má finna hér.