Páll Magnús­son aftur í fjöl­miðla: „Ég er að reyna að standa við það sem ég lofaði sjálf­um mér“

Páll Magnús­son, fyrr­verandi út­varps­stjóri og þing­maður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að fara aftur í fjöl­miðla og verður með viku­lega Dag­mála­þætti á mbl.is.

Ég mun fjalla um það sem er efst á baugi á hverj­um tíma. Þætt­irn­ir verða á­kveðin viku­­upp­­­gjör á póli­tík­inni,“ seg­ir Páll Magnús­­son í sam­tali við mbl.is.

Páll er spennt­ur að byrja og seg­ist hafa lofað sjálf­um sér þegar hann hætti í stjórn­­mál­um í fyrra að taka ein­ung­is að sér verk­efni sem hon­um fynd­ust skemmti­­leg.

„Ég hlakka til að byrja á þessu og er viss um að þetta geti verið á­huga­vert og skemmti­­legt. Ég er að reyna að standa við það sem ég lofaði sjálf­um mér þegar ég hætti í póli­tík – að gera bara það sem mér finnst skemmti­­legt.“

Þá tel­ur Páll að reynsla hans úr bæði fjöl­­miðlum og stjórn­­mál­um muni nýt­ast hon­um vel á skján­um.

„Að baki býr auð­vitað 40 ára reynsla í fjöl­­miðlum og svo hef ég horft á þetta bæði utan frá og inn­an frá þar sem ég var al­þing­is­maður í fimm ár. Þessi reynsla skap­ar góðan grunn til að gera þetta vel.“