„Þetta er sérkennileg nálgun - svo ekki sé nú meira sagt. Útgangspunkturinn virðist vera að einhverjir skrifstofumenn í menntamálaráðuneytinu eigi að hafa meira um það að segja hver verður formaður nefndar, sem menntamálaráðherra skipar og ber ábyrgð á, en ráðherrann sjálfur.“
Þetta segir Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni.
Í kvöldfréttum RÚV í gær var greint frá því að Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefði farið gegn tillögu sérfræðinga í menntamálaráðuneytinu þegar Einar Hugi Bjarnason var skipaður formaður fjölmiðlanefndar í nóvember síðastliðnum. Í fréttinni kom fram að mælt hefði verið með því að skipa Halldóru Þorsteinsdóttur, lektor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og einn helsta sérfræðing landsins í fjölmiðlarétti, í stöðuna.
Lilja skipaði þess í stað Einar Huga sem hefur litla sem enga reynslu á þessu sviði, en hefur setið í fjölmörgum nefndum á vegum Framsóknarflokksins.
„Þetta nær auðvitað engri átt. Það er ráðherrann sem hefur hið lýðræðislega umboð og lagaskyldu til að velja þann sem hún treystir best til starfans; og ber síðan ábyrgð á þeirri ákvörðun. Það kaus enginn skrifstofumennina til að fara með þetta vald - enda bera þeir enga ábyrgð á hvernig til tekst,“ segir Páll.
Hann bætir svo við í athugasemdum undir færslunni að þetta sé ekki staða sem er auglýst. Um sé að ræða lögbundið val ráðherra á einstaklingi til að gegna tímabundið formennsku í tiltekinni nefnd.
„Það á aldrei að aðskilja vald og ábyrgð; sá sem ber ábyrgðina á að hafa valdið og öfugt. Ef ráðherrann vill spyrja einhvern skrifstofumann álits - sem ég veit ekki hvort hún hefur gert - þá gerir hún það. Og ræður því svo hvort hún gerir eitthvað með það álit - enda ber hún ábyrgðina.“