Páll gat ekki orða bundist yfir Boga í kvöld­fréttunum: „Erfitt og við­kvæmt mál“

Páll Magnús­son, fyrr­verandi út­varps­stjóri og þing­maður, gat ekki orða bundist yfir klæðnaðnum á Boga Ágústs­son frétta­þuli í kvöld­fréttum RÚV í kvöld.

„Ég geri mér grein fyrir að þetta er erfitt og við­kvæmt mál - en ég get bara ekki orða bundist! Efstu tvær tölurnar á jakkanum sem Bogi Agusts­son er í geta hrein­lega ekki átt að vera þar sem þær eru,“ skrifar Páll Magnús­son á Face­book.

„Þetta er fal­legur tví­hnepptur jakki en það er eins og ein­hver ó­prúttinn ná­ungi hafi tekið sig til og saumað á hann tvær utan­á­liggjandi geir­vörtur til að stríða bæði Boga og okkur á­horf­endum. Af með efstu tölurnar. Ég hef ein­faldan smekk - og allt það,“ bætir Páll við.