Páll fær ótrúlegan stuðning: Friðrik býðst til að vinna frítt í tvær vikur og útvega kjötsúpu fyrir alla

Óhætt er að segja að stuðnings- og baráttukveðjum hafi rignt yfir Pál Guðmundsson listamann eftir að hann tilkynnti að niðurrif væri hafið á legsteinahúsi hans í Húsafelli.

Páll skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gær þar sem hann greindi frá málalyktum og að niðurrifinu yrði lokið fyrir mánaðamót. Mikið var fjallað um málið fyrr á árinu en eins og kunnugt er úrskurðaði Héraðsdómur Vesturlands að safnið sem Páll hafði steypt upp væri grundvallað á ógildu deiliskipulagi. Því bæri að fjarlægja það. Margt benti til þess að sættir myndu takast í málinu en svo var ekki eins og Páll rakti í færslu sinni sem má lesa í heild sinni hér að neðan.

Ljóst er að um mikið tilfinningamál er að ræða og hafa hátt í 400 athugasemdir verið skrifaðar við færslu hans. Þar beinlínis rignir kveðjunum yfir Pál og tók Hringbraut saman nokkrar slíkar sem sjá má hér að neðan.

Friðrik Weisshappel, veitingamaður og fagurkeri, er í hópi þeirra sem skrifa athugasemdir við færslu Páls. Hann býðst til að aðstoða hann endurgjaldslaust ef hann ákveður að reisa annað safn á öðrum stað.

„Sæll Páll. Ég vil hér lýsa yfir að ef þú ákveður að reisa húsið eða annað hús aftur þá mæti ég með verkfæri og vinn í tvær vikur með þér. Ég á marga vini sem munu vilja koma líka. Ég mun einnig í þær tvær vikur kosta Kjötsúpu fyrir þá sem þarna koma og lyfta hamri og saum til að negla réttlætið fast aftur. Mínar allra vönduðustu kveðjur, Friðrik Weisshappel.“

Fleiri athugasemdir eru í svipuðum dúr og hvetja margir Pál til að leggja ekki árar í bát. Hér að neðan má sjá nokkrar athugasemdir sem Hringbraut valdi af handahófi.

„Ég er gráti nær og finn til í hjartanu kæri vinur. Að mínu mati hefur nágranni þinn reist sér skammarlegan minnisvarða með þessari framkomu en þú ert elskaður af þjóðinni fyrir þitt göfuga ævistarf. Ég votta þér einlæga samúð.“

„Í guðanna bænum; ekki rífa húsið! Hér er um kerfislæg mistök bæjar- og skipulagsyfirvalda í Borgarbyggð að ræða. Það hlýtur að vera hægt að vinda ofan af þeim mistökum svo húsið fái að standa óbreytt og á sínum stað, með legsteinunum.“

„Þetta er ljótur leikur. En réttlætið sigrar að lokum. Ég býð mig fram í viku vinnu ef þú villt reisa húsið á nýjum stað án endurgjalds Kv HÓ.“

„Það er dapurlegt að heyra af þessari niðurstöðu. Því miður er þetta mál ekki einsdæmi um hvernig fólk getur gengið á nágranna sína. Svo er hlutur Borgarbyggðar í þessu máli einkar umhugsunarverður og til skammar svo ekki sé tekið dýpra í árinni.“

„Kæri Páll takk fyrir allt þitt. Mikilvægt starf og fegurðin í listsköpun þinni afar gefandi. Frekar hallærislegt að ekki sé hægt að lagfæra og bæta þessa fáeina metra sem skilur að. Gangi þér vel með allt þitt.“