Páll Ragnarsson, tannlæknir á Sauðárkróki og fyrrverandi formaður Tindastóls er látinn, 74 ára að aldri. Páll lést á Landspítalanum þann 29. janúar síðastliðinn. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag.
Páll lauk prófi í tannlækningum frá Háskóla Íslands árið 1972 en hann var einnig frábær íþróttamaður á sínum yngri árum. Hann spilaði fótbolta með Valsmönnum á árunum 1966 til 1974, en einn eftirminnilegasti leikurinn í íslenskri knattspyrnusögu er leikur Vals og Benfica á Laugardalsvelli árið 1968.
Benfica var á þeim tíma eitt besta knattspyrnulið heims en innan þeirra raða var hinn magnaði Eusebio, Svarti pardusinn svokallaði, sem af mörgum er talinn einn besti knattspyrnumaður sögunnar. Páll var í vörn Valsmanna í markalausu jafntefli á Laugardalsvelli og fékk hann það hlutverk að gæta Eusebio.
Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag eru rifjuð upp ummæli Eusebio um íslenska varnarjaxlinn. „Hann lék drengilega og sleppti mér aldrei úr augsýn. Hann á heiður skilið fyrir að hafa gætt mín svo vel með þessum hætti.“
Páll fæddist á Sauðárkróki og var alltaf vel tengdur sínum heimabæ. Hann flutti aftur norður eftir tannlæknanámið og árin hjá Valsmönnum. Hann varð formaður Tindastóls árið 1975 og gegndi því embætti til ársins 2006. Hann hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, til dæmis gullmerki ÍSÍ árið 1982 og gullmerki UMFÍ árið 2007. Hann fékk einnig gull- og silfurmerki KSÍ.