„Til framtíðar getum við ekki umgengist íslenska náttúru eins og opinn bar þar sem allir eru að fá sér,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, rithöfundur, leiðsögumaður og stjórnarmaður í Landvernd, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.
Í grein sinni viðrar hann áhyggjur sínar af stefnu Íslands í orkumálum og bendir á að stjórnvöld boði nú tvöföldun orkuframleiðslu á næstu 20 árum.
„Slíkt getur ekki gerst nema á kostnað náttúrunnar. Ísland ræður yfir stærstu ósnortnu víðernum í Evrópu. Heimurinn hefur trúað okkur fyrir þessari gersemi og við ættum að vernda hana fyrir komandi kynslóðir,“ segir hann.
Páll Ásgeir segir að engin þjóð framleiði meira rafmagn en Ísland miðað við höfðatölu en samt geri stjórnvöld áætlanir sem byggjast á áframhaldandi vexti.
„Þau fullyrða að til þess að fara í orkuskipti þurfi að auka framleiðslu um 120% á næstu áratugum. Í dag fara 80% allrar orku sem er framleidd á landinu til stóriðju.“
Páll Ásgeir bendir hann á að fyrir hvert kílóvatt af orku sem íslensk heimili nota þurfi stóriðjan fjögur kílóvött. Á sama tími reyni áhyggjufull alþýðuheimili að minnka kolefnisfótspor sitt með því að kaupa rafmagnsbíl, ferðast á reiðhjóli, fara ekki til útlanda, flokka sorp og vinna gegn matarsóun.
„En fyrir hvern lítra af bensíni sem íslenskum heimilum tekst að spara þyrfti stóriðjan á Íslandi að spara fjóra. Fyrir hvert gramm af koltvísýringi sem okkur tekst að koma í veg fyrir að stígi til himins þyrfti stóriðjan að draga saman fjögur grömm.“
Páll Ásgeir segir að ekki dugi að gera áætlanir sem byggja á óbreyttu ástandi til að ná settu marki í loftslagsmálum.
„Breytingar eru nauðsynlegar. Við getum vel náð settu marki- fullkomnum orkuskiptum með því að breyta lífsháttum okkar en þá verður líka að gera sömu kröfur til álvera og heimila. Íslensk náttúra er opinn bar þar sem allir eru að fá sér. Um land allt eru menn önnum kafnir við að skipuleggja virkjanir, vindorkuver, hugsandi um leiðir til þess að komast framhjá leikreglum umhverfismats og skipulagslaga. Þessu verður að linna.“
Hann segir að eina leiðin til að vernda náttúruna og koma á nauðsynlegum orkuskiptum sé með því að draga úr orkufrekri neyslu.
„Lausnin er í neysluskiptum en ekki orkuskiptum. Hættum að líta á frekari virkjanir sem lausn vandans og vöknum til nýrrar framtíðar með skynsamlegum lausnum Landverndar. Til framtíðar getum við ekki umgengist íslenska náttúru eins og opinn bar þar sem allir eru að fá sér.“
Páll Ásgeir segir að við viljum ekki verða kynslóðin sem gerði heiminn óbyggilegan komandi kynslóðum.
„Þar verða stjórnvöld að ganga á undan með því að gera sömu kröfur til stóriðjunnar og fólksins í landinu. Landvernd kynnir sviðsmyndir þar sem náttúruvernd og loftslagsvernd haldast í hendur á hádegisfundi n.k. miðvikudag. Frekari upplýsingar er að finna á fésbókarsíðu Landverndar.“