Gagnrýni á Einar Hermannsson, fyrrverandi formann SÁÁ og yfirlýsingu hans um vændiskaup, heldur áfram en fer þó nokkuð dalandi á samfélagsmiðlum. Margir eru agndofa yfir tíðindunum og er beðið eftirvæntingar eftir næstu tíðindum innan samtakanna. Stundin hefur greint frá því að stjórnarmaður hafi vitað af málinu í tvö ár án þess að aðhafast nokkuð, þá eru sprottnar upp sögusagnir að málið spili upp í hendurnar á Þórarni Tyrfingssyni, fyrrverandi formanni, og fylgjendum hans, sem ætli að láta til skarar skríða á næstunni.
Valgerður Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera á Íslandi og Pírati. Deilir í dag áhrifamikilli sögu á Twitter:
„Pabbi minn var alki, hann fór í meðferð fyrir tæpum 30 àrum og var virkur í félagsstarfi AA samtakanna. Þegar hann dó sendu vinkonur hans mér myndir af honum með þeim við hin ýmsu tilefni, brúðkaup, afmæli, árshátíðir, bara pabbi og stelpurnar,“ segir hún.
„Þær sögðu mér að hann hefði passað upp á þær. Varað þeim við einhver creep og verið sá eini sem aldrei reyndi neitt við þær, svo honum var boðið í allt og var oft eini karlinn.“
Vala heldur áfram: „Pabbi hafði miklar mætur á Einari ma. vegna þess að hann sleit samstarfi við spilakassana. Hann snýr sér nú við í gröfinni.“