Óvissa í máli Gylfa Þórs - Lögreglan veit ekki hvað er í gangi

Lögreglan í Manchester er ekki viss um hver verði næstu skref í máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar.

Þetta segir hún í svari við fyrirspurn 433.is.

„Eins og áður hefur komið fram er trygging hans á enda og eins og staðan er núna vitum við ekki hver næstu skref verða,“ segir í svari lögreglunnar.

Líkt og alþjóð veit var Gylfi handtekinn fyrir ári síðan, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Hann hefur síðan verið laus gegn tryggingu og í ferðabanni frá Englandi. Tryggingin rann út á laugardag.

Gylfi er 32 ára gamall en hann hefur verið í atvinnumennsku í fótbolta í hátt á annan áratug. Hann er nú án félags en samningur hans við enska úrvalsdeildarfélagið Everton rann út í sumar.