Óvenjulegur og dularfullur hlutur endaði í ruslagám við við Lang­holts­skóla - Gripurinn er nú kominn í rétta hendur

Uppvakningarfæti sem var stolið úr Húsdýragarðinum fannst á fimmtudag. Gripurinn, sem var hluti af sérstöku draugahúsi í tilefni af hrekkjavökunni, fannst djúpt í rusla­gámi við Lang­holts­skóla á fimmtudag.

Fréttablaðið fjallar um málið.

„Hann var heill en daun­illur og undir­gengst núna sótt­hreinsun svo hann geti vonandi átt langan og far­sælan feril eftir,“ sagði umsjónarmaður draugahússins, og bætir við að krakkar í Laugar­dalnum hafi rekist á fótinn og komið með hann skelfingu lostin í skólann. „Þar endaði hann í ruslinu því enginn vissi hvað þetta ó­hugnan­lega furðu­verk gæti verið,“

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.