Ökumenn á Vestfjörðum þurfa að fara gætilega á þessum árstíma ef þeir vilja ekki sprengja dekkin á ökutækjum sínum. Segja má að mávar beri ábyrgð á þessum skemmdarverkum.
Fjallað var um þetta óvenjulega vandamál í fréttum RÚV í gærkvöldi.
Magnús Ingi Traustason, dekkjaviðgerðarmaður hjá Sólbörðum, á Ísafirði fær til sín tugi sprunginna dekkja í hverri viku. Þannig er mál með vexti að mávar í Súgandafirði sækja sér skeljar sem þeir svo brjóta á veginum til að ná sér í æti. Skeljabrotin geta verið býsna beitt og stungist inn í dekkin.
Það er einmitt það sem hefur verið að gerast í Súgandafirði og segir Magnús að hann hafi verið að fá tíu til tuttugu dekk til sín á viku á verkstæðið á Ísafirði.
Þetta vandamál er ekki nýtt af nálinni og hefur verið viðvarandi lengi. Eðli málsins samkvæmt er þó lítið hægt að gera í málinu enda þarf náttúran að hafa sinn gang.
Hér má sjá umfjöllun RÚV frá því í gærkvöldi.