Myndband af slagsmálum í miðborg Reykjavíkur rataði inn á eina stærstu vefsíðu heims, Reddit, í gær og vakti þar talsverða athygli.
Á Reddit má finna allt milli himins og jarðar, til dæmis myndbönd og myndir af hinu og þessu, en umrætt myndband birtist undir yfirskriftinni Gamlárskvöld á Íslandi eða New Year‘s Eve in Iceland.
Á myndbandinu má sjá tvo menn takast á fyrir utan vínveitingahús í Tryggvagötu í miðborg Reykjavíkur en áður en langt um líður kemur lögreglubíll aðvífandi. Þegar lögreglumenn stíga út úr bílnum standa mennirnir þó upp úr götunni og fallast í faðma, eins og um bestu vini væri að ræða.
Óvíst er hvenær myndbandið er tekið en líklega er það nokkurra ára gamalt. Lögreglubílarnir á götum landsins líta að minnsta kosti öðruvísi út í dag og þá er töluvert snjóþyngra á götum borgarinnar þessa dagana en myndbandið gefur til kynna.