Óvæntar framkvæmdir: Þórunn Antonía og börnin heimilislaus

Söngkonan Þórunn Antonía er í vanda stödd samkvæmt nýrri færslu sem hún setti inn á Facebooksíðu sína í kvöld.

„Kæru vinir. Ég og börnin erum í vanda,“ segir Þórunn en óvæntar framkvæmdir hafa valdið því að hún og börnin eru allt í einu húsnæðislaus.

„Við erum því miður heimilislaus og förum úr húsnæði okkar án alls um stund, vegna óvæntra framkvæmda, það jákvæða er að skýring er komin á tíðum veikindum okkar á seinasta ári og leigusali okkar er mjög stuðningsrík og húsnæðið verður tekið i gegn að fullu,“ segir hún en Þórunn lenti í því eins og svo margir aðrir á Íslandi að mygla fannst í húsnæðinu.

En nú eru góð ráð dýr þar sem enginn veit hversu langan tíma mun taka að gera við húsnæðið eða hvort þau geta snúið aftur.

„Við elskum hverfið okkar 107 Reykjavik og nágranna og ég er mjög leið að þetta sé staðan. Hjálp er einhver með íbúð til leigu á verði sem einstæð mamma ræður við? Ég skoða hvað sem er,“ segir Þórunn en tekur þó fram að húsnæði með miklum raka eða grun um myglu komi ekki til greina sem verður að teljast skiljanlegt.