Óttast að heimilin gleymist aftur

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna óttast að heimilin gleymist aftur, rétt eins og í síðustu efnahagsóförum fyrir ríflega áratug, en þá sem að öllum líkindum núna verði hagur bankastofnana og atvinnulífs í forgangi hjá stjórnvöldum.

Þetta kemur fram í kröftugu samtali hennar við Sigmund Erni í fréttaþættinum 21 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöldi, en þar gagnrýnir hún jafnt verkalýðshreyfinguna sem stjórnmálaflokkana fyrir það áhugaleysi sem báðir aðilar sýni heimilum landsins. Og stjórnkerfið allt hagi sér raunar með sama hætti, sýslumenn séu ekkert annað en framlenging af viðskiptabönkunum þegar kemur að því að framfylgja kröfum þeirra síðarnefndu, sem taki, þá sem áður, ekkert tillit til aðstæðna. Hún telur boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu heimilanna vera ekki nokkurn skapaðan hlut, annan en þann að vandanum verði frestað, sem komi svo heimilunum í koll á seinni stigum. Engin raunveruleg hjálp sé í pípunum, svo sem hvað verðtryggingu varðar, vísitölur eða greiðsluhlé án kostnaðar, enda viljinn til þess ekki nokkur hjá Seðlabanka eða stjórnvöldum, jafnvel ekki verkalýðsforystunni heldur