Óttar verið edrú í 16 ár: „Ævi mín gjörbreyttist við þessa ákvörðun“

Óttar Guðmundsson geðlæknir fagnar því nú um þessar mundir að 16 ár eru liðin frá því að hann hætti að drekka áfengi. Óttar minntist þessara tímamóta í bakþönkum Fréttablaðsins um helgina og er óhætt að segja að hann sé enn ein sönnun þess að edrúmennska geri lífið betra.

Óttar segir að Jónas Hallgrímsson og skáldbróðir hans, Sigurður Breiðfjörð, í draumi fyrir skemmstu.

„Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræðingur þótti drykkfelldur meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn á 19. öld. Drykkjuskapur var alvanalegur í þessum hópi og margir góðir drengir drekktu sér fullir í síkjum borgarinnar. Jónas orti falleg erfiljóð um þessa ungu félaga sína en breytti engu um eigið líf,“ rifjar Óttar upp í pistlinum.

Hann bendir á að vinir hans hafi stofnað bindindisfélag til að fá hann til að hætta að drekka en allt kom fyrir ekki. Eins og flestum er kunnugt féll Jónas í bröttum stiga þegar hann var drukkinn og andaðist hann nokkru síðar.

„Ári seinna andaðist skáldbróðir Jónasar, Sigurður Breiðfjörð, úr eymd og drykkjuskap í miðbæ Reykjavíkur. Báðir lofsungu þeir vímuna sem dró þá til bana á besta aldri.“

Óttar kveðst sjálfur hafa kynnst áfengi ungur að árum sem og töfraljómanum og blekkingarvefnum í kringum Bakkus.

„Þegar vandamálin fóru að knýja dyra fór ég í afneitun og lét allar aðfinnslur eins og vind um eyrun þjóta. Smám saman dugði afneitunin ekki til lengur og ég neyddist til að horfast í augu við sjálfan mig. Nú á dögunum voru 16 ár síðan ég hætti að drekka í þessari lotu,“ segir Óttar sem sér ekki eftir þeirri ákvörðun.

„Ævi mín gjörbreyttist við þessa ákvörðun og mér tókst að eignast líf sem hefði verið óhugsandi fyrir galeiðuþræl Bakkusar konungs.“

Hann segir að bæði Jónas og Sigurður hafi vitjað hans í draumi á dögunum þar sem þeir sögðust vera brakandi edrú fyrir handan.

„Betra er seint en aldrei,“ sagði Sigurður og glotti svo skein í tannlausa gómana. Jónas flissaði og mælti: „Við áttum eftir að yrkja okkar bestu ljóð.“ Síðan leiddust þeir inn í ljósið. Ég vaknaði, mundi drauminn og fór á morgunfund í AA-samtökunum.“