Óttar segir torg í Reykja­vík standa auð vegna veðurs

Óttar Guð­munds­son, geð­læknir og pistla­höfundur Frétta­blaðsins segir í bak­þönkum blaðsins í dag að menn hafi lengi reynt að skapa stemningu á torgum í Reykja­vík, en veðrið ráði mestu um og því endist fólk ekki til lengdar að sitja úti á torgi með kaffi­bolla í hrag­landa.

„Ís­lendingar hafa lengi dáðst að götu­menningu á torgum og iðandi mann­lífi í er­lendum stór­borgum. Fólk situr á úti­kaffi­húsum eða bekkjum og nýtur sólar og veður­blíðu,“ segir Óttar og bætir við að Ís­lendingar hafi lengi reynt að skapa slíka stemningu í Reykja­vík.

„Lækjar­torg var stundum fjöl­sótt en aðal­lega vegna þess að strætis­vagnar borgarinnar höfðu þar við­dvöl,“ bendir Óttar á og segir að aldrei hafi tekist að koma upp kaffi­húsa­stemningu á ís­lenskum torgum.

Það sé ein­fald­lega veðrinu að kenna. „Stóran hluta ársins ganga lægðir yfir landið með til­heyrandi suð­austan­átt og rigningu. Fólk endist ekki til lengdar að sitja úti á torgi með kaffi­bolla í hrag­landa,“ segir Óttar.

Hann segir það vera synd að skipu­lags­fræðingar borgarinnar hafi ekki áttað sig á þessu. „Verið er að byggja fjöl­mörg torg úti um alla borg þar sem reiknað er með fjöl­skrúðugu mann­lífi.“

„Nú á að byggja nýtt torg við Hlemm sem bætist við Hjarta­­torgið, Hörpu­­torgið, Kára­­torgið, Vita­torgið og Óðin­s­torgið sem öll eru í póst­­númeri 101. Kaffi­þyrstir Reyk­víkingar og ferða­­menn hafa næg tæki­­færi til að njóta úti­­­markaða, tón­listar­manna og iðandi mann­lífs,“ segir hann.

Óttar segir einka­bílnum vera út­hýst, „enda eigi gestir að ganga eða hjóla létt­klæddir milli torga.“

Þá segir Óttar torgin vera auð og tóm öllu jöfnu og að hvergi hafi tekist að skapa ein­hverja úti­stemningu eins og skipu­leggj­endur borgarinnar þekkja frá út­löndum. „Ís­lenska veðr­áttan lætur ekki að sér hæða,“ segir hann.

„Nú þyrfti borgar­ráð að á­­lykta að veður­far verði að breytast á Ís­landi tafar­­laust svo að hægt sé að spranga um nýju torgin á stutt­buxum með bros á vör. Það er ó­­þolandi að þessi dutt­lunga­fulla veðr­átta skuli gera há­­leita skipu­lagningu að engu,“ segir Óttar.