Ein hugmyndin í skýrslu um aðgerðir gegn kolefnisfótspori höfuðborgarsvæðisins er að bjóða ungu fólki að fresta því að taka bílpróf gegn árskorti í Strætó.
Óttar Proppé, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, segir á Facebook að betra væri taka bílprófið af eldra fólki fyrr eða af miðaldra fólki þriðja hvert ár: „Af hverju er lausnin alltaf að láta erfiðar breytingar bitna á einhverjum öðrum (les. ungu fólki, fátækum, útlenskum)?,“ spyr hann. „Er það kannski vegna þess að þeir sem um véla eru yfirleitt eldri og menntaðri heimamenn sem hafa skiljanlega meiri skilning á hagsmunum þeirra sem eru fyrir á fleti?“
Fjölmargir hafa tekið undir þetta sjónarmið hjá ráðherranum fyrrverandi sem bætir við: „Ekki að ég taki ekki undir að það sé alltof mikið af bílum og óþarfa umferð hér á landi á.“
Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, er með aðrar lausnir;
„Einfaldasta leiðin er að leggja virkilega sársaukafullt gjald á útblástursvaldandi orkugjafa. Eitthvað sem virkilega veldur uppnámi og fær fólk til að leita í angist og ótta að leiðum til að brenna ekki olíu og bensín. Eitthvað sem veldur fjárhagsáhyggjum, neyðir fólk til að velja milli atvinnutækifæra, afþreyingar og félagslífs út frá því. Eitthvað sem setur þetta í miðjuna á ákvarðanatöku heimilishaldsins,“ segir hann.
„Að mínu mati dugar ekkert minna. En auðvitað vill fólk þetta ekki, og hver einasti hópur finnur margar og merkilegar ástæður fyrir því hvers vegna hann ætti að vera undanskilinn. Á meðan halda náttúruöflin áfram sínu og er slétt sama um hvort við séum að leysa þetta með sanngjörnum hætti eða ekki.“
Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, tekur í sama streng og Óttar.
„Miklu nær að fjarlægja okkur þessi eldri, hálfblind og rugluð, af götunum og setja okkur upp í strætó.“