Óttar: „Mark­miðið er að fylla ráðu­neytin af ungu og fal­­legu fólki sem hvorki eldist né fitnar“

Fyrir skömmu vöktu auglýsingar um störf í stjórnsýslunni mikla athygli. Þar var lýst eftir ungum lögfræðingum sem hefðu bandarísku sjónvarpsþáttapersónurnar Ally McBeal og Harvey Specter sem fyrirmyndir.

Óttar Guðmundsson geðlæknir segir í bakþönkum í Fréttablaðinu í dag að það sé gaman þegar ráðuneyti fari ótroðnar slóðir með þessum hætti en að fremur ætti að finna lögfræðinga sem sæktu sér fyrirmyndir í Njálu.

„Lýst er eftir lög­fræðingi sem vill líkjast Merði Val­garðs­syni og Þór­halli Ás­gríms­syni í Brennu-Njáls­sögu. Við­komandi þarf að vera klækj­óttur og kunna að skara eld að eigin köku. Við lýsum eftir silki­tu­ngu á lopa­sokkum.“ Með slíkri aug­lýsingu væri stjórn­sýslan að tengja nú­tímann inn í sagna­arfinn.

Hann stingur upp á fleiri hugmyndum fyrir aðrar stöður innan stjórnsýslunnar.

„Þjóð­minja­vörður ætti að hafa Skalla­grím á Borg sem fyrir­mynd enda var hann fast­heldinn á gamalt drasl. Seðla­banka­stjóri mætti líkjast Agli afa mínum Skall­gríms­syni sem gróf sjóði sína í jörð,“ skrifar hann.

„Ráðu­neytið vill breyta í­mynd sinni. Þau Harvey og Ally eru út­lits eins og dúkkurnar Bar­bie og Ken. Þau eru bæði með BMI undir 19 með full­komnar tennur og vel hirt hár og taka sig sér­lega vel út á mynd með ráð­herrum Sjálf­stæðis­flokks.

Auð­vitað á ekki að rýna í próf­skír­teini og feril­skrá heldur skoða hversu mjög um­sækjandinn líkist glæsi­legum sjón­varps­stjörnum. Mark­miðið er að fylla ráðu­neytin af ungu og fal­legu fólki sem hvorki eldist né fitnar svo að hóp­myndin verði alltaf jafn glæsi­leg.“