Óttar geð­læknir undrandi yfir hegðun Pírata: „Upp­­fullir af eigin mikil­­vægi“

Þing­menn Pírata hafa haldið Al­þingi Ís­lendinga í gíslingu síðustu daga með því að halda annarri um­ræðu út­lendinga­frum­varpsins gangandi í yfir 10 daga. Þing­menn flokksins hafa haldið yfir 100 ræður um frum­varpið og tryggt það að önnur mál komast ekki á dag­skrá.

Óttar Guð­munds­son geð­læknir hefur fengið sig full­saddan af þessari hegðun og lætur Pírata heyra það í bak­þönkum Frétta­blaðsins í dag.

„Ég hef aldrei borið mikla virðingu fyrir Al­þingi Ís­­lendinga enda fylgst lengi með störfum þess. Einu sinni var ég reyndar í fram­­boði til þings en náði ekki langt sem betur fer,“ skrifar Óttar.

„Brennu Njáls saga er kennslu­­bók í lögum og laga­flækjum. Í stærstu deilu­­málum sögunnar söfnuðu and­­stæðar fylkingar liði lög­manna sem barðist með laga­krókum. Fræg eru við­­skipti þing­manna í eftir­­­málum brunans að Berg­þórs­hvoli.

Þór­hallur Ás­gríms­­son hrl. (nemandi Njáls) fylgdist grannt með út­úr­­snúningum og ó­­heiðar­­leika lög­­spekinganna í því máli. Hann var ekki fóta­­fær sakir í­­gerðar og veikinda. Þegar lög­manna­bullið náði há­­marki spratt hann upp og stakk á í­­gerðinni og varð al­heill. Hann hraðaði sér á þing­­staðinn og batt enda á þvæluna með rögg­­semi og á­­kveðni,“ heldur Óttar á­fram áður en hann snýr sér að Al­þingi.

„Síðustu viku hefur ríkt upp­­­lausnar­á­­stand á Al­þingi við Austur­­völl. Nokkrir þing­menn, upp­­fullir af eigin mikil­­vægi, hafa haldið uppi mál­þófi með enda­lausu ræðu­haldi. Hver mann­vits­brekkan á fætur annarri hefur haldið yfir 100 (!!) ræður. Aðrir þing­­menn hafa sýnt þessu fjasi lítinn á­huga og ekki mætt á þing­fundi. Þetta fólk er þó á á­­gætum launum frá al­­menningi í þessu leik­húsi fá­rán­­leikans. Á sama tíma og sam­­fé­lagið ólgar af verk­­föllum og mála­­ferlum og vaxta­hækkunum rífast raun­veru­­leika­firrtir þing­­menn við sjálfa sig,“ skrifar Óttar.

Hann nafn­greinir ekki þing­menn Pírata en Arn­dís Anna Kristínar­dóttir Gunnars­dóttir hefur haldið hátt í 150 ræður um málið á­samt Birni Leví Gunnars­syni og Andrési Inga Jóns­syni

„Enginn Þór­hallur Ás­gríms­­son er í sjón­­máli til að stöðva þessa enda­­leysu. Egill afi minn hefði kastað silfri yfir þing­heim til að sjá þennan hégóm­­lega hóp fara að slást. Hefðu kosningarnar 1987 farið öðru vísi hefði ég kannski orðið þessi maður sem bjargaði þinginu úr trölla­höndum. Maður á mínum aldri má láta sig dreyma,“ skrifar Óttar að lokum.