„Þjóðin getur hlakkað til stresslausra jóla og áramóta í boði kóvíð og sóttvarnayfirvalda,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir í bakþönkum Fréttablaðsins um helgina.
Óttar hefur oft fjallað um jólakvíðann sem læsir klóm sínum í þjóðina á þessum árstíma.
„Jólin hafa skollið á af fullum þunga með öllum sínum væntingum og kröfum og margir kiknað undan álaginu,“ segir Óttar og bætir við að flestallir landsmenn hafi tekið þátt í keppninni um fullkomið helgihald. Nú ber svo við að kórónuveirufaraldurinn hefur sett rækilegt strik í reikninginn.
„Ekkert ber á jólastressi. Enginn gerir lengur kröfu um fullkomin jól. Það er allt í lagi að fresta hreingerningum, kökubakstri og jólagjafainnkaupum til vors. Yfirvöld banna bæði jólaboð og ferðalög milli landshluta mörgum til mikils léttis. Gamla fólkinu verður ekki hleypt út af elliheimilum svo að ekki þarf að hafa áhyggjur af afa og ömmu. Engir venjulegir jólatónleikar í Hörpu. Fjöldatakmarkanir í verslunum þýðir að jólapökkum fækkar undir gervijólatrénu. Enginn fer til Tene og jólasveinar eru atvinnulausir, pirraðir og þunglyndir. Messur og allar gestakomur falla niður svo að margir munu klæðast gömlum náttfötum yfir öll jólin. Engir ferðamenn verða á landinu um áramótin svo að menn þurfa ekki að skjóta upp flugeldum. Brennur verða bannaðar,“ segir Óttar sem endar pistil sinn á þessum orðum:
„Gleðileg hvíldar- og letijól!“