Óttar ekki búinn að ákveða hvort hann þiggi boð Skúla: „Ég sé enga ástæðu til að fara í neitt skítkast“

„Ég er bara ekki alveg búinn að ákveða það,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir í Fréttablaðinu í dag þegar hann er spurður hvort hann hafi í hyggju að þiggja boð Skúla Mogensen um að heimsækja sjóböðin í Hvammsvík.

Óhætt er að segja að bakþankar Óttars í síðasta helgarblaði Fréttablaðsins hafi vakið athygli en þar gagnrýndi hann ferð fyrirmanna Sjálfstæðisflokksins í sjóböð Skúla. Sagði Óttar að Skúli væri gjaldþrota auðmaður og velti hann því fyrir sér hvernig mönnum dytti í hug að láta sjá sig með slíkum manni.

Skúli svaraði Óttari í grein í Fréttablaðinu á þriðjudag eins og Hringbraut fjallaði ítarlega um.

„Hér eru sem sagt skilaboðin þau að ef einhverjum mistekst þrátt fyrir að hafa átt farsælan feril þá ber að hafna viðkomandi, setja til hliðar og útskúfa. Að sama skapi, átti undirritaður að gefast upp og leggjast í kör og hætta frekari frumkvöðlastarfsemi og uppbyggingu? Ég vona svo sannarlega að þetta séu ekki ráðin sem þú gefur þínum skjólstæðingum,“ sagði Skúli meðal annars í grein sinni.

Í lok greinar sinnar bauð hann Óttari í heimsókn í Hvammsvíkina til að kynna fyrir honum þá uppbyggingu sem á sér stað í Hvalfirðinum.

Óttar segist ekki vita hvort hann þekkist boðið og þá kveðst hann ekki hafa í hyggju að svara pistli Skúla.

„Ætlunin var alls ekki að gagnrýna Skúla eitthvað sérstaklega, heldur miklu frekar ráðherrana sem virðist vera alveg sama um kjósendur. Það var það sem þetta gekk út á,“ segir hann. „Ég sé enga ástæðu til að fara í neitt skítkast.“